Fara í efni

HÆGJAST MUN Á ESB FERLINU

Nú er það ljóst að við hörðustu andstæðingar að aðildarviðræðum við ESB samkomuna höfum fengið öflugan bandamann. Sá er alnafni afrísks knattspyrnuliðs er nú tekur þátt á HM 2010. Ljóst er enfremur að með aðkomu hans höfum vér tryggt okkur að hægjast muni verulega á ferlinu. Nú er bara Ögmundur að einhenda sér í að Icesave fari fyrir dómstólanna, sem gerir það að verkum að aðildarumsóknin frýs þar sem ekki þykir sýnt að turbo hraði muni ríkja við vangaveltur dómkvaddra.
Kveðja,
Óskar K Guðmundsson, fisksali.