Fara í efni

AÐ HALDA REISN OG STOLTI

Heill og sæll Ögmundur.
Ég tek undir með Elle, þar sem hún brýnir þig áfram til þinna góðu verka. Hvatning hennar minnir skemmtilega á óþreyju byltingarskáldsins mikla Majakovskís, þegar honum fannst allt vera að kafna í innantómu skrifræði og sérhagsmunagæslu allra hinna stein-gerðu í björgum nómenklatúrunnar í Kreml. Sem einn fulltrúi margra nóboddía í öskustó hrunsins, þá vil ég þakka þér heiðarlega baráttu, því í og með vegna hennar getur maður þó amk. enn haldið mannlegri reisn sinni og stolti - þrátt fyrir allt. Að lokum langar mig til að minnast á það, að mér finnst grein Björns Jónassonar, hér á síðunni, afskaplega athyglisverð, fróðleg og upplýsandi.
Pétur Örn Björnsson