Fara í efni

ÁSKORUN Á ÖJ

Það eru fleiri en þú Ögmundur agndofa að horfa uppá þá vitleysu að bankaræningjar eins og Ólafur Ólafsson sölsi undir sig Samskip enn eina ferðina á meðan hann undirbýr gjaldþrot eignarhaldsfélagsins Kjalar, sem líklegast verður hundruð milljarða gjaldþrot á kostnað þjóðarbúsins. Er ekki Egla, einnig félag í eigu Ólafs þegar komið í þrot með milljarðakröfur á Kjalar og Kjalar nú með á annað hundrað milljarða kröfu á Kaupthing? Var ekki aðeins fyrir nokkrum mánuðum Alfesca matvælafyrirtækinu komið undan með einhverju "yfirtökutilboði" frá Frakklandi. Hve lengi ætlið þið að láta þennan mann ganga lausan og valsa um með þýfið úr Kaupthing? Ég lagði mikla áherslu á það í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga að helstu útrásarvíkingana eins og Ólaf Ólafsson yrði að setja án tafar í gæsluvarðhald, frysta eigur þeirra og leita uppi þýfið úr bankaráninu. Setja hryðjuverkalög á þessa menn eins og Bretar gerður gagnvart Landsbankanum, þannig myndu öll viðskiptasund lokast fyrir þeim á nánast augabragði um allan heim. Bankarnir, sérstaklega Kaupþing, voru ekkert annað en týpískar Ponzí svikamyllur. Þessir menn halda áfram meðan þeir ganga lausir. Með aðgerðaleysi sínu hafa Íslensk stjórnvöld gert Ísland að griðarlandi fyrir nokkra af stærstu svikahröppum mannkynssögunnar. ÞÚ ÖGMUNDUR situr á Alþingi og getur gert eitthvað í málinu. Leggðu fram frumvarp til að ná lögum yfir þessa menn án tafar. Safnaðu liði á þingi og innan þíns flokks sem er í ríkisstjórn til að vinna málinu fylgi. Öskraðu ef á þarf í pontu Alþingis á sofandi þingheiminn um að fá hryðjuverklög sett á þessa fjárglæframenn, því þetta eru fjárhagsleg hryðjuverk sem eru að leggja þjóðfélag okkar í rúst og hryðjuverkamennirnir munu planta hverri fjárhagslegri sprengjunni á eftir annarri þar til þeir eru komnir bakvið lás og slá.
Ástþór Magnússon
http://lydveldi.blog.is