Fara í efni

SPURT AF ÆRNU TILEFNI

Ein einföld spurning, eða kannski tvöföld, til þín Ögmundur. Spurt af ærnu tilefni. Ætlar þú að standa vaktina í Icesave málinu, eða ætlar þú og kannski fleiri að lyppast niður í káetu líkt og Guðfríður Lilja, að boði heyrnarlausra Stalínista og heimskapítalista?
Pétur Örn

Þakka þér bréfið Pétur Örn. Guðfríður Lilja hefur mér vitanlega aldrei lyppast niður í neinu máli. Gerðu mér þann greiða að lesa niðurlag þessa pistils: https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/i-astarsambandi-vid-valdid
Kv. Ögmundur