Fara í efni

ÖGMUNDUR STATTU MEÐ ÍSLENDINGUM Á ÖGURSTUND!

Aldrei áður hefur íslenska þjóðin þurft svo sárlega á hetjum að halda og einmitt nú. Svo ég vil hvetja þig til dáða héðan úr Danaveldi- fylgdu hjartanu. Ekki fylgja Steingrími og Jóhönnu í Icesavemálinu - þau hafa því miður algjörlega villst af leið og berjast fyrir öllu öðru en okkar stórbrotna landi. Og það er bæði undarlegt og átakanlegt að verða vitni að. Því hversu mikið sem þú óskar að ríkistjórnin haldi velli bliknar sá draumur við að gera það eina rétta og vernda Ísland og hagsmuni Íslendinga.Og það er ekki gert með því að gefast upp fyrir bleyðum sem sparka í beygða en ekki brotna þjóð heldur með því að berjast gegn þeim yfirgangi!!! Svo sýndu styrk og sanna hetjulund:)og segðu stórt nei. Þú hefur nefnilega það til bera sem allir Íslendingar geta flykkst um af einlægni: sameingarkraft og ættjarðarást. Lifi Ísland. Baráttukveðjur,
Eva Lísa Bjarklind