Fara í efni

EKKI SKULDAÞRÆLAR!

Ögmundur.
Pétur Örn spurði þig af ærnu tilefni og þú vísaðir í þessi lokaorð pistils: "Að öðru vísi samsett ríkisstjórn hefði leitt til svipaðrar niðurstöðu. Fyrir þessum einstaklingum ber ég meiri virðingu en fyrir hinum sem alltaf gera það sem auðveldast er í stöðunni hverju sinni". Orðin: "Að öðru vísi samsett ríkisstjórn hefði leitt til svipaðrar niðurstöðu" finnst mér vera afsökun þeirra sem ætla að koma ólöglegri nauðung yfir á saklausan almenning þessa lands. Og af því Bretar, Hollendingar og Evrópusambandið heimta það. Ykkur verður aldrei stætt á að koma Icesave yfir á okkur og gera börnin okkar að skulda-þrælum ofríkisvelda.
ElleE