Fara í efni

EKKI SAMÞYKKJA

Ögmundur!
þú ert eina von okkar til að þetta verði ekki samþykkt!!!!!!!!!! Guðfríður Lilja virðist ætla að guggna á síðustu metrunum. Við eigum ekki að borga þetta - þetta voru einkabankar og einkaskuldir þeirra sem nú eru að maka krókinn í Lúxemborg og á fleiri stöðum. Þeir þurfa að borga sitt.
Guðrún Harðardóttir

Hverjir skyldu nú hafa guggnað í þessum málum öllum? Eitt veit ég að það er ekki Guðfríður Lilja. Hún þorir að gera það sem hún telur skynsamlegast hverju sinni. Það er meira en flestir aðrir treysta sér til. Þau sem eru gagnrýnin á Icesave eiga að beina spjótum sínum að öðrum en Guðfríði Lilju. Það er mjög ómaklegt og beinlínis rangt! Ef ég ætti að nefna dæmi um hugaða þingmenn þá kæmi hennar nafn upp í hugann.
Sjá: https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/i-astarsambandi-vid-valdid
Kv. ,
Ögmundur