Fara í efni

BARNALÁNS-SONNETTAN

Í græðgi eru veðsett börn þess virði
að vandamálum foreldra þau breyti
því ávallt fer það svo að lána leiti
þeir lánsömu sem forðast vilja byrði.

Já, finna má í sögusögnum grófum
að sumir hafi veðsett hjörtu barna
og mér er tjáð að hrunið hefjist þarna
er hér var framið rán af illum þjófum.

Svo afskrifa þeir litlu bernskubrekin
því bönkunum er ekki tamt að kvelja
þær smásálir sem léttar leiðir velja
og lánin verða bara aftur tekin.

Já, víst er dásemd blessað barnalánið
sem Byr og Glitnir veittu fyrir ránið.    

Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld