Fara í efni

EKKI HEIL BRÚ

Sér grefur gröf þótt grafi. Það er greinilegt að þú Ögmundur ásamt meðreiðarfólki þínu verður þess valdandi að ríkisstjórnin fellur og glíman við kreppuna verður launafólki í landinu mun erfiðari en hún þurfti að verða. Það er ekki heil brú í aðferðafræði ykkar, þín, Guðfríðar, Lilju Mósesdóttur, Atla Gíslasonar og unga drengsins úr Dölunum með siðferðilegum stuðningi Hjörleifs Guttormssonar, sem er eins konar "Hannes Hólmsteinn" vinstri manna. Það er ekki hægt að ná utan um þá pólitík sem þið drífið eða hvert hún á að leiða þjóðina. Ekki verður betur séð en að þessi hópur hafi ekki verið að láta kjósa sig inn á þing til að stjórna landinu og tilvera hans virðist byggja á því að Sjálfstæðisflokkurinn sé við völd.
Natan