Fara í efni

ÁTAKANLEG BREYTING

Sæll.
Þð er átakanlegt að sjá maddömurnar úr alþýðubandalaginu sitja fremstar í flokki á ríkisstjórnarmyndinni sem birt var í Fréttablaðinu eftir afsögn þína. Það er vont að afsögn þín hafi leitt til þess. En guð minn góður hvað ég var fegin að flytja eigi dánarmeinaskrá frá Hagstofu til Landlæknis. Fyrir okkur sem störfum í heilbrigðiskerfinu er það mikil framför! Þar gengur vinstri stjórnin í takt! Mér finnst átakanlegt að þú hafir yfirgefið ráðuneytið og ég tel það ranga ákvörðun. Þótt virði ég tjáningarfrelsi ofar öllu. Ég hefði kosið að þetta mál hefði orðið öðruvísi og að "hinir óháðu" hefðu áfram átt sæti í ríkisstjórn. En ég er fegin að þessi stjórn ætlar að halda áfram og við skulum vona að þessi vandamál hristi ykkur saman. Höldum hrunfólkinu frá völdum.
"Óháður" feminískur kjósandi vg