Fara í efni

ÁFRAM Á SÖMU BRAUT!

Ágæti Ögmundur
Ég legg það ekki í vana minn að angra forystumenn með yfirlýsingum um persónulega afstöðu mína, en vil nú gera undanþágu þar á. Frá því VG varð til sem stjórnmálaafl hefur atkvæði mitt legið þar á bæ.
Þín framganga undanfarna daga hefur verið betri túlkun á þessu atkvæði mínu en til þessa hefur orðið vart hjá stjórnmálamönnum og ég hvet þig eindregið til að ganga áfram sömu braut.
Það er mikilvægt að sjá að enn er til fólk í íslenskum stjórnmálum sem er tilbúið til að taka grunnmið af hagsmunum almennings í landinu og það er jafnframt von mín að VG reynist nógu þroskað stjórnmálaafl til að missa ekki sjónar á meginmarkmiðum þótt aðstæður séu erfiðar.
Með kveðjum,
Halldór K. Valdimarsson