EKKI EINKAVÆÐA ELDHÚSIN!
Sæll Ögmundur....
Villi hefur 100% rétt fyrir sér á vefsíðunni þinni dag.
Ég veit að menn sjá mikið eftir að einkavæða eldhús og
ræstingar á sjúkrahúsunum í Kanada, og þá örugglega
annarsstaðar. Það er reynt í gríð og erg að snúa við, en það
reynist kostnaðarsamt eftir breytinguna þar sem að allt verður að
byrja upp á nýtt. Tækin, starfsfólkið og þjónustan er orðin allt
önnur og einkafyrirtækin hafa fengið þefinn af einokunarstöðu
sinni. Þau vilja eðlilega græða á fyrirtæki sínu og sá gróði
kemur úr vösum almennings!
Það þarf engin að segja manni að sjúkrahúsin geti ekki séð um
ræstinguna matreiðsluna, þá dreifinguna til sjúklingana,
MIKIÐ hagkvæmara og betur en utanaðkomandi
gróðahyggju einkaaðilar! Auðvitað er alltaf hægt að
betrumbæta, en áherslan á einmitt að vera á það innan reksturs
heilbrigðiskerfisins! Það er rétt hjá Villa að þú eigir að
halda vel utan um spítalana, og allt heilbrigðiskerfið í eigu og
þágu almennings, með "hands on" rekstri þínum og fulltrúa þinna.
Okkar sjúkrahúss-starfsfólk er fyrstaflokks, en það er allt á
sérsviði og verður því að stjórna því og sjá um að þjónusta þess sé
sem best og hagkvæmust, ekki bara í fræðilegum samræðum, heldur
alltaf verklega. Eitt sem verður að gera strax Ögmundur, það er að
útiloka æviráðningar allstaðar í þjóðfélaginu, hvort sem um er að
ræða lækna, ræstingarfólk, dómara, saksóknara eða forstjóra!
Æviráðning slekkur á aðhaldinu og andlegum vexti viðkomandi!
Þetta eins og svo margt annað geta núverandi stjórnvöld framkvæmt
strax! Það er ekki þar með sagt að fólk geti ekki haldið sama
starfinu ævilangt. En það á ekki vera samkvæmt lögum og
kunningsskap! ÖGMUNDUR, HLEYPIÐ EINKAFYRIRTÆKJUNUM ALLS
EKKI INNÍ REKSTUR SJÚKRAHÚSA! KÚPLIÐ HONUM FREKAR ÚT ÞAR SEM
HANN NÚ ER, EINS OG MEÐ LYFIN OG TÆKJABÚNAÐ, SJÁIÐ UM INNFLUTNING
OG VIÐHALD Á ÖLLU SLÍKU SJÁLF!
En ég endurtek að Villi hefur 100% rétt fyrir sér, allur
rekstur þarf góða og nákvæma "hands on" stjórn!
Ögmundur, það er heldur alls ekki samkvæmt þér að einkavæða í
heilbrigðisgeiranum, og er því pólitískt séð, skaðlegt!
Kveðja,
Helgi