Fara í efni

STUNDUM GOTT AÐ VERA ERFIÐUR

Sæll Ögmundur.
það er nokkuð ljóst að ég er sennilega síðasti maður á Íslandi til að verða sammála þér í pólitík... allt þar til að það rann upp fyrir mér að líklega ertu búinn að vera rödd sannleikans í gegnum undanfarin ár. Mér er sérlega minnistætt er ég bísnaðist yfir kapítalistum grein þinni þar sem þú drógst fram samlíkingar okkar v. Argentínu. Sem ættborinn Sjálfstæðismaður er ég að finna að mitt hjarta slær með þinni réttsýnu hugsun ! Haltu áfram að standa í lappirnar ögurstund skilur menn frá drengjum og hafðu þökk fyrir að vera jafn þver og erfiður og þú ert.
Óskar Borg