ÞINGKONAN VINNI FYRIR KAUPINU SÍNU
Hvað vakir fyrir Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, þingkonu
Samfylkingar? Mér hefur helst virst hún hafa það til mála að leggja
að finna að við þingmenn VG. Einhvern tíma var hún að nöldra út í
þig Ögmundur fyrir að vilja lækka vexti og nú er það Jón Bjarnason
sem á að segja af sér fyrir að orða það sem þjóðin öll er að hugsa,
nefnilega að fresta aðildarviðræðum við Evrópusambandið á meðan
ESB-ríki hafa í hótunum við Ísland. Þetta er hárrétt hjá Jóni
Bjarnasyni. Það væri gaman að fá að vita fyrir hvað við höfum
greitt Sigríði Ingibjörgu kaup frá síðustu kosningum. Fyrir að
agnúast út í þá þingmenn sem vilja standa í fæturna fyrir heimilin
og þjóðina? Ég leyfi mér að beina því til þingkonunnar að finna sér
verðug viðfangsefni á Alþingi og vinna fyrir kaupinu sínu með því
að leggja til eitthvað sem máli skiptir og er uppbyggilegt til
málanna.
Sunna Sara