ICESAVE OG ÁFRAMHALDANDI ÓREIÐA
Einn mikilvægur þáttur í að koma gjaldþrota Íslandi á lappirnar
er að samþykkja Icesave samkomulagið. Þetta er því miður illskásti
kosturinn. Vonlaust er fyrir Ísland að fóta sig á alþjóðavettvangi
ef þeir velja að vera óreiðumenn sem ekki greiða skuldir sínar. Og
hvers vegna ætti þjóðin að vilja það? Hún getur greitt og á að
sjálfsögðu að gera það. Um leið og Alþingi samþykkir samkomulagið
verður þjóðin búin að gleyma því. Það er vissulega forvitnilegt að
vita hvað myndi gerast ef samkomulagið yrði fellt. Þá myndast nýr
meirihluti á Alþingi um málið og sá meirihluti gæti kosið nýja
samninganefnd. Í slíkri nefnd ættu þeir, sem harðast hafa gagnrýnt,
að eiga sæti. Því miður gæti sú forvitni reynst þjóðinni afar
dýrkeypt og dregið mál á langinn og jafnvel leitt til einangrunar.
Hitt er annað mál að þjóðin mætti draga einhvern lærdóm af þeim
hamförum sem stjórnarfar síðustu ára leiddi yfir hana, en það
virðist hún ekki gera. Dæmi: Cecilsson hf, Grundarfirði, virðast
hafa forðað skipum og kvóta undan veðkalli en skilið eftir skuldir
upp á 7, 5 milljarða fyrir íslenska skattgreiðendur að greiða. Ætla
yfirvöld ekki að afturkalla þennan gjörning og taka þessi verðmæti
upp í skuldina? Sama hefur gerst með Eimskip og fleiri fyrirtæki. Á
sama tíma og skattgreiðendum er gert að greiða gríðarlegar
óreiðuskuldir er þetta að gerast. Þetta má þjóðin ekki sætta sig
við. Tafarlausar aðgerðir, takk. Þá vil ég benda á að fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu gerðist sekur um misnotkun á
innherjaupplýsingum og hagnaðist gífurlega á því. Hann er enn í
trúnaðarstöðu fyrir ríkið sem ráðuneytisstjóri nú í
menntamálaráðuneytinu! Þetta er ekki hægt að bjóða þjóðinni. Það er
lykilatriði að þessi aðilar sem svo augljóslega eru að auðgast með
ólöglegum hætti sæti refsingu. Þannig fást mikilvægir aðilar til
samstarfs, annars ekki. Ef ekki verður refsað öðrum til viðvörunar
þá mun ekkert breytast og ástandið verða þjóðinni
illviðráðanlegt.
Pétur