Fara í efni

AF HVERJU MÁ EKKI UPPLÝSA ÞJÓÐINA?

Hafið þið aldrei spurt lögfræðinga um lögmæti þeirra krafna sem liggja að baki Icesave? Ber okkur lagaleg skylda til að greiða skuldir einkafyrirtækja? Og gætum við það þó við vildum? Af hverju eru alltaf bara dregnir að landi hagfræðingar til álitsgjafar? (með fullri virðingu fyrir þeim ). Það vill þannig til að lög eru til að leysa úr deilum, af hverju eru ekki lögin notuð til að leysa úr Icesave deilunum en ekki tilfinningar stjórnmálamanna? Þetta má bara ekki eiga sér stað. Ég skora á þig og okkur öll sem viljum ekki setja okkur og komandi kynslóðir í skuldafangelsi -samþykkja ekki þessa vitleysu. Af hverju má ekki segja þjóðinni frá innihaldi þessa samningsdraga - sem ég vona að séu enn einungis drög? Af hverju á þjóðin að samþykkja þvílíkan skuldaklafa og fá ekki að vita hverjar forsendur eru eða af hverju og hvers vegna? Það er engin lógíkk í þessu. Ég treysti á þig Ögmundur- þú svíkur ekki þína þjóð.
EG