LÁTUM EKKI GERA OKKUR AÐ FÍFLUM!!!
Með Sjálfstæðisflokkinn við stjórn undanfarin 20 ár með
hjálparflokkum sýnum, var gengið í EES, sem gerði
einkavinavæðinguna mögulega sem gerði þjófum og ómennunum mögulegt
að stela öllu steini léttara. Seðlabankinn dældi fé í einkabankana
eftirlitslaust og stjórnlaust, og gerði þjóðina jafnvel ábyrga
fyrir svalli og prettum einkabankanna, sem er hreint furðulegt og
ófyrirgefanlegt!
Fjárglæfrafólkið eignaðist villur, einkaþotur og falda illafengna
sjóði, meðal annars í karabískum sjónræningjabælum með aðstoð
svokallaðra banka! Efnahagur vor Íslendinga hrundi svo
alvarlega að við verðum öreiga með slíkan óhróður og skuldabagga á
bakinu að það tekur næstu kynslóðir niðja vorra að burðast undir
honum!
Við höfum ekki einungis orðið gjaldþrota af völdum
Sjálfstæðisflokksins og hjálparflokka hans. Við stjórn þeirra
hafa meiri þjóðfélagsglæpir ásamt alþjóðaglæpum, fengið að
þróast á Íslandi en fólk getur ímyndað sér; þar með
fíknilyfjaneysla og fíknilyfjaframleiðsla, ofbeldi, barnaníð,
hórdómur, líkamsárásir og þjófnaður, já jafnvel morð! Hér er
um að ræða stórmál, fyllilega ávið hrun fjárhagsins, nokkuð sem mun
gera okkur enn erfiðara að rétta úr kútnum og greiða "skuldir"
okkar! Hin fagra höfuðborg vor Reykjavík, er jafnvel orðin alræmd
sukkborg norðursins, og er auglýst sem slík á rósamáli af ferða
þjónustunni erlendis. Þetta er allt sárgrætilegt og mun elta
þjóðina lengi! Siðferðishruninu af völdum stjórnar
Sjálfstæðisflokksins og hjálparflokka hans er síðan haldið við af
glæpahvetjandi dómstólum með dómurum skipuðum í tíð
Sjálfstæðisflokksins og hjálparflokka hans!
Nú segja pólitíkusar Sjálfstæðisflokksins að þeir lofi að gera
þetta ekki aftur, þeir ætli að vera heiðarlegir og gæta hagsmuna
allrar þjóðarinnar, ekki bara einkavina sinna!
Þegar maður heyrir þessa hræsni, þá dettur manni í huga að þetta
falska fólk haldi að íslenskir kjósendur séu hálfvitar upp til
hópa. Pólitíkusar Sjálfstæðisflokksins gráta nú auðvaldshyggjuna og
einkamarkaðshyggjuna og aðgang sinn að pólitísku jötunum, sem búið
er að loka. Eins og við forðum Sjálfstæðismenn vitum, þá
höfum við verið svikin, ekki af þeim sem við töldum
andstæðinga vora, heldur af glæpaklíkum Sjálfstæðisflokksins
sjálfs! Þessi ósómi hefur eyðilagt flokkinn sem í byrjun gaf
þjóðinni von um sjálfstæði og bjarta framtíð, en er nú ekkert orðið
nema sitt fagra nafn "Sjálfstæðisflokkur" sem er orðið því miður,
algjört öfugmæli!
Það eru ekki margir sem hafa gengið eins langt í svikum gagnvart
íslensku þjóðinini - svikið hana og rænt hana sjálfstæði sínu
og svert mannorð hennar, eins og núverandi úrkynja, sjálfsþjónandi
pólitíska áhöfn flokksins, sem kallar sig öfugmælinu
"Sjálfstæðisflokkur!!!!
Ég vona að heilbrigðir og sannir Íslendingar kjósi allt annað en
Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum, ef ekki er geð til þess,
þá að kjósa ekkert!
Kveðja,
Úlfur