Fara í efni

ERU MÚTUR "BULL" SEM Á AÐ GLEYMA?

Ömurlegt er að hlusta á Sjálfstæðismenn reyna að hvítþvo sig af greiðslum FL-group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins sem lykta meira en lítið af mútum. Þeim finnst málið upplýst. Guðlaugur Þór hafi nefnt menninna sem hann fékk til að safna peningunum. Vandinn er sá að þeir hinir sömu voru innanbúðarmenn í FL-group og Landbankanum, lykilmenn. Samt segir Bjarni, formaður Sjálfstæðisflokksins að enginn kjörinn fulltrúi hafi haft milligöngu!!!! Var Guðlaugur Þór ekki kjörinn? Kristján Þór Júlíusson, oddviti Íhaldssins fyrir norðan, segir síðan í fréttum að menn eigi ekki að gleyma sér í umræðu um þriggja ára gamalt bull - sem hann reyndar hafi ekki kynnt sér!!!! Ætlast einhver til þess að þessir stjórnmálamenn verði teknir alvarlega?
Jóel A.