ÞEIR ELTU HANN Á ÁTTA HÓFA HREINUM...
"Þeir eltu hann á átta hófa hreinum og aðra tvenna höfðu þeir
til reiðar, en Skúli sat á Sörla einum, svo heldur þótti gott til
veiðar." Svipað líður okkur Íslendingum er við heyrum másið í AGS í
bakið á okkur.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eirir engu þar sem hann kemur. Nú vilja
þeir halda vöxtum háum þó svo að það sé sýnt að muni valda hruni
efnahagslífsins. Heimili og fyrirtæki virðast eiga fáa
formælendur.
Og þó:
Á Sprengisandi, þætti Sigurjóns Egilssonar á Bylgjunni Sunnudaginn
1. febrúar segir Jón Daníelsson hagfræðingur við London School of
Economics þetta: "Það þarf að lækka vextina. Í fimm prósent eða
meira.... nú er meiri hætta á verðhjöðnun en verðbólgu, sem er mjög
alvarlegt. Ef vextir verða lækkaðir mun það laga stöðu heimila og
fyrirtækja mjög mikið. Þetta eigum við að gera strax."
Verst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er ekki með á nótunum.
Hreinn K