Fara í efni

PLATKOMMAR

Kæri Ögmundur.
Ég les altaf síðuna þína, því hún er fólkinu viðkomandi og mér finnst þú vera raunsær. Í dag sé ég ekki betur en þetta íhaldsmanna-kerfi,sem hefur eyðilagt fjárhag Íslands, líkist mjög sovjetíska kerfinu, meðan það var verst. Oddamenn íhaldsins hafa ráðið lögum og lofum og hagað sér eins og væru þeir eigendur Íslands."Fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera," stendur í bókinni góðu. "Já!" en í guðanna bænum látið ekki svona platkomma ná völdum aftur.
Kveðja,
Inga Birna