Fara í efni

HVER ER MAÐURINN - HVAÐ GERIR HANN?

Hann var viðskipta-og bankamálaráðherra þegar samið var við Evrópubandalagið um regluverk bankanna á EES- svæðinu. Hann hefur um skeið setið sem varaformaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Hann er formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Hann lét nota sig með mynd og texta í auglýsingu Landsbankans um Icesave reikninga sína, einsog hver önnur fyrirsæta, þegar Hollendingar voru plataðir til að bæta lausafjárstöðu bankans með innlánum. Hver er maðurinn - og hvað gerir hann nú?
Ólína