Fara í efni

LES ALLAN PÓST

Að senda skilaboð til síðunnar en ekki til Ögmundar er undarlegt! Er einhver sem svarar fyrir Ögmund sjálfan? Til hvers að vera með spurningar til Jóns Jónssonar? Þó að það sé eftirlitsmaður með síðunni þá má hann svara spurningum en Ögmundur les yfir og samþykkir póstinn og sendir sem persónulegan póst sem er frábært fyrir viðtakanda. Legg til að þið breytið þessu.
Með kveðju.
Helgi

Þetta er misskilningur hjá þér Helgi. Ég fæ allan póstinn sem sendur er til síðunnar, les hann yfir sjálfur - það geri ég einn og enginn annar - og svara þegar um slíkt er að ræða.
Með kveðju,
Ögmundur