Fara í efni

ÁSKORUN TIL ÚTFLYTJENDA Á ÓUNNUM FISKI

Þjóðin stendur núna á timamótum eins og hef áður greint frá bæði hér´á þessum síðum eins og á heimasíðu minni www.heilun.blogcentral.is  undir liðnum Völvuspá 2008/2009 sem er í 97% tilvika að ganga eftir en því miður, brimskaflinn er framundan. Bretar gáfu okkur bylmingshögg í brjóstið sem kostar þjóðina ánauð næstu 20 ár hið minnsta með tilheyrandi reiði, vonbrigðum og fjöldagjaldþrotum.
Við hugsum mikið um aðra en það sem á að ske mun ske og eru bæði USA og Breland að fá forsmekkinn af því sem koma skal. En hvað getum við sjálf gert til að launa greiðann fyrir bylmingshöggið? Jú við getum og biðjum alla útflytjendur á ferskum fiski á erlenda markaði að stöðva hann nú þegar timabundið og selja til fullvinnslu á innlendum markaði og hámarka verðmæti hvers kg enda er auðlindin viðkvæm þótt aukinn þorskur sé í augsýn. Hvað mun gerast í Bretlandi-Cuxhaven-Hull-Grimsby og fleiri löndunarstöðum?
Jú, ég minnist þáttar sem Ólafur Sigurðsson fyrrum fréttamaður á RUV átti við borgarstjóra þessara borga og upplýstu þeir að rúmar 2 milljónir manna hefðu beint og óbeint atvinnu vegna fisks af Íslandsmiðum og hvað gerist berist hann ekki? Bara í aðraganda hryðjuverkalaganna í Bretlandi gekk öflugur þingmaður á fund Melvins King seðlabankastjóra og krafðist opnunnar á greiðslulínum til Íslands fyrir innfluttan fisk til vinnslu að öðrum kosti yrðu 25.000 manns atvinnulaus bara í hans kjördæmi og enginn fiskur á borðum heimila þar. Hvað segir þetta okkur? Jú, við getum haft þau gífurlegu áhrif í krafti fiskjar að öll ríkisstjórn Bretlands falli eins og spilaborg verði haldið rétt á spilunum. Eru útflytjendur til að setja upp boxhanska?? Ég ætla rétt að vona það og skapa aukna vinnu hér á landi um leið. Enginn er að krefjast að þetta verði til frambúðar þótt ég sjái að það muni verða þjóðinni farsælt.
Þór Gunnlaugsson