Fara í efni

BURT MEÐ ÓSTJÓRNINA!

Heill og sæll Ögmundur.
Ég les alltaf síðuna þína og mér finnst hún gefa raunsæja mynd af ástandinu á landinu bláa.Ég er steinhissa á því, að ríkisstjórn, sem hefur gert þjóðina gjaldþrota skuli ekki annað hvort segja af sér, sem væri mannsæmandi, eða þá hreinlega verða rekin.Óstjórnin sýnir, að þörf er á fólki, sem kann sitt "fag."
Krafa fjöldans á Austurvelli virðist ekki hafa áhrif á þessa óstjórn. Við, sem höfum smávegis eftirlaunahýru á Íslandi, en búum erlendis verðum líka fyrir þessum ósköpum vegna gífurlegrar gengisfellingar krónunnar. Gefið óstjórninni frí og fáið hæfara fólk til að bjarga því, sem bjargað verður í staðinn fyrir að leyfa áframhaldandi sukk.
Kveðja til fólksins, sem safnast saman á Austurvelli og krefst réttlætis. Megi þolraun þeirra bera góðan árangur til farsældar Íslands í framtíðinni.
Kveðja,
Inga Birna Jónsdóttir

Sæl Inga Birna og þakka þér hlý orð. Þú nefnir heimasíðu mína. Ég læt lesendum hérmeð í té slóðina í þina síðu: www.ingabirna.com 
Kv.
Ögmundur  

Með kveðju,
Ögmundur