Fara í efni

EIGA EKKI LANDEIGENDUR AÐ STÖÐVA LÖGBROTIN?

Kæri Ögmundur.
Gætu landeigendur við neðri hluta Þjórsá ekki bara risið upp sjálfir og látið lögreglu stöðva þetta tafarlaust? Bestu kveðjur ,
Jón Þórarinsson

Þakka þér bréfið Jón. Ég tel það vera á ábyrgð framkvæmdavaldsins, Alþingis og þjóðarinnar allrar að stöðva náttúruspjöllin við Þjórsá, sem ganga þvert á lög og skynsemi.
Kv.
Ögmundur