Fara í efni

ÓMETANLEG REYNSLA

Sæll félagi.
Til að tryggja að Rússar færu að settum reglum í nýafstöðnum kosningum, sáum við Íslendingar okkur ekki annað fært en senda þeim reynsluboltann Valgerði Sverrisdóttur, framsóknarmann. En þegar spillingu og svindl ber á góma þá er reynsla Framsóknar ómetanleg:

Með festu gegn Putin nú fara þeir mikinn,
um fláttskap í kosningum saka þeir hann,
en til þess að kanna þar svindlið og svikin
við sendum þeim auðvitað framsóknarmann.

Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld