Fara í efni

HAFNARFJARÐARSIGRI ÞARF AÐ FYLGJA EFTIR Í VOR

Sæll Ögmundur.
Mig langar til að óska Hafnfirðingum til lukku með mjög afgerandi niðurstöðu í kosningunni í fyrradag. Og ekki síst er það baráttu mjög margra sem líst ekkert á hvert stefnir í atvinnumálum þjóðarinnar þegar landsmenn eiga helst af öllu að sitja uppi með álbræðslur í öllum landsfjórðungum og eiga helst að vinna í þeim líka! Þið þingmenn VG eigið sérstaklega þökk fyrir að gefa okkur frumkvæðið að þeirri hugsun að þetta væri ekki ómögulegt! Til lukku!!! Og við skulum fylgja þessu rækilega eftir í kosningunum í vor!! Guðjón Jensson,
Mosfellsbæ