Fara í efni

TEKIÐ UNDIR MEÐ EYVINDI

Sæll Ögmundur.
Bréf Eyvindar hér á síðunni til þín fyrir fáeinum dögum var sem talað út úr mínu hjarta, ögrandi og vel skrifað. Ég ber fulla virðingu fyrir umhverfisbaráttu ykkar í VG og kvenfrelsisbaráttan er fín, líka utanríkisstefnan. Allt er þetta gott í bland. En það er baráttan fyrir réttlátara Íslandi sem skiptir öllu máli. Ég gef lítið fyrir misréttissamfélag, jafnvel þótt það sé í fögru og ómenguðu umhverfi. Eða eins og Eyvindur sagði; " Það er hins vegar hin einarða barátta fyrir félagslegu réttlæti, sem skilgreinir Vinstri Græna og gerir þá ólíka öllum flokkum og reyndist vera ferskur andblær í loftlausum vistarverum stjórnmálanna..."
Halldóra Jónsdóttir