Fara í efni

EKKI ÖLL EGGIN Í SÖMU KÖRFUNA !

Nú langar mig að spyrja þig Ögmundur ert þú enn þeirrar skoðunar að hátækni- og þekkingariðnaður sé framtíðin í ljósi atburða á Ísafirði?
Þorsteinn Hauksson

Þakka þér bréfið. Lokun Marels á Ísafirði er hrikalegt áfall fyrir fjölda einstaklinga og fjölskyldna og Ísafjörð í heild sinni. Þetta gæti hins vegar hæglega gerst í stórfyrirtæki á borð við Alcan eða Alcoa. Ekki gleyma því. Þegar allt kemur til alls er betra að hafa eggin í mörgum körfum en einni. Brotthvarf Marels frá Ísafirði minni okkur á þá staðreynd.
Kv.
Ögmundur