Fara í efni

MEÐ KÁRAHNJÚKA Á HEILANUM?

Er Kárahnjúkavirkjun hægra og vinstra hvel allrar hugsunar hjá VG ?
Kalli

Þakka þér bréfið Kalli. Það er stutt og laggott. Svarið við spurningu þinni er á þá lund að Kárahnjúkar eru núna mál málanna ekki aðeins hjá VG heldur allri þjóðinni enda er verið að stíga örlagarík skref þessa dagana. Það er ekki þar með sagt að önnur mál séu okkur ekki hugleikin enda höfum við hvergi dregið af okkur í baráttu fyrir jöfnuði í þjóðfélaginu, bættum hlut lágtekjufólks, jafnrétti kynjanna, breyttum áherslum í atvinnumálum, utanríkismálum og að sjálfsögðu gegn því að eignir þjóðarinnar séu gefnar auðmönnum. Með bestu kveðju,
Ögmundur