Fara í efni

HVERS VEGNA EKKI ÁLYKTUN 377?

Sæll Ögmundur.
Afhverju er ekki löngu búið að beita ályktun 377 í öryggisráðinu gegn Ísrael og fram hjá Bandaríkjunum?
Bestu kveðjur,
Jón Þórarinsson

Komdu sæll.
Ástæðan er sú að ekki er fyrir þessu pólitískur vilji.  Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs lagði til að íslenska ríkisstjórnin bæri fram tillögu þessa efnis en fyrir því var enginn áhugi í Stjórnarráði Íslands. Hér að neðan gef ég slóðir á greinar þar sem vísað er í ályktun 377 og rökstuðning VG fyrir sínu máli.
Kveðja,
Ögmundur
https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/island-getur-haft-ahrif-i-libanon

https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/rikisstjornin-og-libanon-betur-ma-ef-duga-skal