Fara í efni

FLEIRI VILJA NÓTT EN DAG

Í fréttum greinir frá því að margfalt fleiri vilji að Silvía Nótt verði næsti borgarstjóri Reykvíkinga en Dagur B. Eggertsson. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Samfylkinguna. Spurt var hvort menn vildu fremur sjá í stóli borgarstjóra, Dag eða Silvíu Nótt, ef valið stæði einungis á milli þeirra tveggja. 72% nefndu Silvíu Nótt og 11% Dag. 10 af hundraði vissu ekki um hvaða Dag væri að ræða og vildu því ekki taka afstöðu, 4% vildu bæði og loks voru 3% með pirring og neituðu að svara.
Helgi Þ.