Fara í efni

ER ÞINGKARL AMBAGA?

Sæll vertu.
Hef miklar áhyggjur af útþynningu tungunnar, sem er viðvarandi vandi. Er ekki hins vegar ráð að fara dusta af orðinu "maður" og árétta að það á bæði við um konur og karla. Eða eru karlar einungis þeir sem geta verið mannlegir og konur þá kvenlegar þegar talað er um humanity! Þingkonur er svo sem í lagi, en ambögurnar þingkarlar, sýslukonur, o.fl eru ekki fallegar né hafa nokkurt gildi í jafnréttisbaráttunni. Stóru málin eins og launaleynd, takmörkuð starfsréttindi trúnaðarmanna á vinnustöðum við að ná fram upplýsingum um launakjör o.fl halda áfram að verða stóru vandamálin.
Kær kveðja,
Borgþór