20% ÁLAGSGREIÐSLUR FYRIR DEKURVIÐTÖL?
Heill og sæll Ögmundur !
Ég ákvað að skrifa þér þegar ég heyrði það í fréttum að Halldór
Ásgrímsson væri farinn að halda mánaðarlega fréttamannafundi, bara
svona um allt og ekkert. Þetta er víst siður í útlöndum hjá stóru
köllunum eins og Bush og Blair og þeim. Ósköp held ég nú að
fréttamennirnir séu fegnir að þetta er þó ekki nema einu sinni í
mánuði því varla eru þetta miklar skemmtisamkomur. Annars hélt
ég að ráðherrarnir og allra síst forsætisráðherra þyrftu ekki
að boða fréttamenn til sín sérstaklega. Ég sé ekki annað en þeir
baði sig stanslaust í fjölmiðlasviðsljósinu og fái endalaus
dekurviðtöl í kastljósþáttunum. Ég man ekki betur en ég hafi
horft á þá báða Halldór og Davíð tvisvar sinnum hvorn í heilum
kastljósþáttum í haust og fleiri ráðherrar, eins og hún Valgerður
eða Álgerður eins og einhver kallaði hana, hafa verið í heilum
þáttum. Það sem ég hef farið að spá í er aðgangur ykkar sem eruð í
stjórnarandstöðunni að fjölmiðlum og svona þáttum. Er það virkilega
þannig að ráðherrar komist upp með að panta svona fín viðtöl
við sig og heila þætti en svo fái stjórnarandstaðan einhverjar smá
fréttir úr þinginu og þegar fulltrúar hennar eru í viðræðuþáttum þá
eru það alltaf með mörgum öðrum. Á ekki ríkisútvarpið að vera
hlutlaust og gera grein fyrir mismunandi sjónarmiðum í málum og
auðvitað hinir fjölmiðlarnir líka. En ég veit það ekki
Ögmundur hvort hægt er að skammast út í fréttamennina fyrir þetta,
þeim er sjálfsagt skipað að gera þetta af yfirmönnunum. Og þá fór
ég að hugsa, ætli þeir fari ekki fram á leiðindaálag ofan á kaupið
í næstu samningaviðræðum fyrir að sitja á fréttamannafundunum með
Halldóri. Mér fYndist 20% alveg lámark.
Sveinbjörg
Þakka þér bréfið Sveinbjörg. Margt er til í því sem þú segir. Hins vegar efast ég um að fréttamenn muni fá því framgengt að fá sérstakar álasgreiðslur - 20% - fyrir fréttamannafundi í Stjórnarráðinu eða vegna svokallaðra "drottningarviðtala" sem Davíð Oddsson innleiddi og Halldór og félagar taka í arf. En spurningin er skiljanleg því þessi viðhafnar- eða dekurviðtöl sem þú nefnir svo hljóta að vera álag á samvisku og starfsheiður góðra fréttamanna.
Með kveðju,
Ögmundur