Fara í efni

SÚRÁLSFRÉTTIR FALLA Á HLUSTIR STEINDAUÐRA FJÖLMIÐLA!

Þegar þú vaktir athygli á því fyrir fáeinum dögum hér á síðunni að ríkisrekið áróðursfyrirtæki væri að freista erlendra mengunarfyrirtækja að hasla sér völl á Íslandi, þá taldi ég sannast sagna að í landinu myndi skapast mikil umræða um þetta ruglaða siðleysi. En svo virðist sem fjölmiðlarnir séu dauðir og almenningur líka. Mið-Amería varð bananalýðveldi vegna fátæktar og undirokunar. Það er vesælla hlutskipti að gerast þræll – feitur og vel haldinn. Það sýnist mér ætla að verða hlutskipti Íslendinga.
Haffi 

Þakka bréfið Haffi. Hjartanlega sammála þér að sjálfsögðu. Lesendum til glöggvunar er HÉR pistillinn sem þú vísar í.
Kveðja,
Ögmundur