AÐ HRUNI KOMINN Nóvember 2004
Húrra fyrir ÖBÍ !
Öryrkjabandalag Íslands birtir heilsíðuauglýsingu í blöðum í dag
með mynd af ríkisstjórninni og áminningu um svikin loforð hennar
gagnvart öryrkjum. Sviksemi ráðherranna við öryrkja þarf að halda
hátt á lofti alveg fram að næstu Alþingiskosningum. Þessi
mannskapur virðist komast upp með allt vegna gleymsku almennings og
síðan að sjálfsögðu lýtaaðgerða...
Sunna Sara
Vextir niður en þjónustugjöldin upp
Hvernig stendur á þvi að um leið og bankastofnanir eru i
samkeppni, þá eru þær farnar að taka gjald fyrir hvert einasta
viðvik. Sparisjóðurinn i Smáralindinni tekur 190 kr. í
afgreiðslugjald ef maður kemur eftir kl. 16:00 á daginn.
p.s. Hann opnar ekki fyrr en kl. 12:00. Hvað er i gangi hjá þessum
fjármálastofnunum sem eru með þessa peninga sem eiga að vera
til skiptanna i þessu þjóðfelagi?
Mansi
ÞJÁNINGARFRELSIÐ
Að fordæma samráð en fallast á stuld
og féfletta þjáningarbróður
er einsog að hlaupast frá ógreiddri skuld
og ásaka þann sem er góður.
Kristján Hreinsson, skáld
Telja menn Gunnar Smára þóknanlegan Davíð og félögum?
Ég hef fylgst með skrifunum hér á síðunni, þar með taldar
tilvísanir í skrif Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu, um
hræringar í Norðurljósum og að Sigurður G. Guðjónsson kunni að hafa
verið rekinn til að milda Davíð Oddsson og ríkisstjórnina. Það er
rétt að Sigurður gagnrýndi oft Davíð og ríkisstjórnina. En heldur
þykir mér ótrúlegt að menn ráði Gunnar Smára Egilsson í stað
hans í því skyni að kaupa frið við Davíð&Co.! Hvernig í
ósköpunum geta menn komist að ...
Nebúkadnesar
HINN STERKI MINNIHLUTI
Hví eru ýmsir svo argir
og öfundin svo sterk
þótt sjálfstæðismenn séu margir
og misjöfn þeirra verk?
Kristján Hreinsson, skáld
Grænmetisætur og skattamál
Vinstri grænir gefa sig út fyrir að vera náttúruverndarsinnar,
en hversu langt nær sú hugsun? Hyggst flokkurinn gera eitthvað til
að bæta hag annarra náttúruverndarsinna hér á landi, grænmetisætna,
til dæmis með því að fá niðurfelldan munaðarvöruskatt á
soyavörum...?
Erna
Er stríð aldrei réttlætanlegt?
Ég á erfitt með að skilja afstöðu Vg til stríðsins í Afganistan.
Hvað hefðu Bandaríkin átt að gera? Ekkert? Er aldrei réttlætanlegt
að fara út í stríð að ykkar mati...?
Sveinsson
HINN ÍSLENSKI ÞRÆLL
Hinn auðmjúki, íslenski þræll
er ötull og víst er hann dæll
þótt kvalin hann störfin sín stundi
og stæri sig mest af því
að biðja um betri laun,
hann brosir að sinni raun
og líkist þá hógværum hundi
sem húsbóndinn sparkar í.
Kristján Hreinsson, skáld
Í ORÐASTAÐ DAVÍÐS ODDSSONAR EFTIR UTANRÍKISUMRÆÐU Á ALÞINGI
Mannréttindi ég stundum skil,
sem mennirnir séu jafnir.
En oftar ég þann skilning vil,
að við séum yfirhafnir.
Páll
Frá lesendum
HVÍSLAÐ TIL AÐ SÝNAST?
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
RÁÐHERRA FÆR MERKI UM BANKARÁN
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
STAÐREYNDIN ER ...
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
MEÐVIRKNISVEIRAN Á ALÞINGI
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
ALVÖRULEYSI PÍRATA
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
HVER BER ÁBYRGÐ Á ÍSLENSKU KJARNORKUVERUNUM?
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
HROSSAKAUP Á ALÞINGI OG FLEIRA UM BANKARÁN
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
EINKAVÆÐING GRÓÐANS
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
ÍSLANDSBANKI SELDUR
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
YFIRVOFANDI BANKARÁN
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Frjálsir pennar
Grímur skrifar: PÁSKAUPPRISA PCC
... Upprisa BakkiSilicon nú um páska er að líkum hafin yfir mannlegan, röklegan skilning. Birtist því sem undur. Rétt eins og ófarasagan frá upphafi rekstrar 2018 til stöðvunar 2020 er látin standa óútskýrð, eins og gildir um athæfi æðri máttar-valda. Fullvíst er að “Hönd Guðs” kemur að páskaupprisu BakkiSilicon sú sem líknsöm er oft þeim þurfandi ...
Lesa meiraKári skrifar: AFGLÆPAVÆÐING GLÆPAMENNSKU
Hún er sérkennileg umræðan um „afglæpavæðinguna“. Nú liggur fyrir breytingarfrumvarp[i] í heilbrigðisráðuneytinu um að ekki verði lengur refsivert að hafa í vörslu sinni svonefnda „neysluskammta“ eiturlyfja. Er frumvarpið þar komið í „samráðsgátt“ (sýndarmennskugátt). Málið er angi af öðru miklu stærra máli sem kalla má „undanhaldið mikla“ og lýsir sér í uppgjöf og undanhaldi á mörgum sviðum – allt í nafni „framfara“ auðvitað. Þetta er í stuttu máli geigvænleg þróun og alls ekki góð, öðru nær. Eftir stendur að fíkniefnaneysla er harmvaldur allra sem í henni lenda og aðstandenda þeirra ...
Lesa meiraBaldur Andrésson skrifar: HVERT SKAL HALDIÐ?
... Andsvar hugsandi vinstrimanna er að hrista af sér doðann, endurmóta róttæka umbótastefnu í vinstriátt, losa sig undan hægriáráttu eigin forystu. Það er ekki bara þörf, það er brýn nauðsyn ef ekki á illa að fara.
Í stuttu máli: Endurreisn vinstri róttækni i sjónmálum er nauðsyn, sem binda þarf víðtækum umbóta- vilja í stjórnarháttum. Lágkúrustandi vinstriafla þarf að ljúka sem fyrst. ...
Kári skrifar: UPPRUNAÁBYRGÐIR - BLEKKINGAR OG SKATTSVIK
Á þessu vefsvæði er réttilega bent á fáránleikann sem fylgir svokölluðum upprunaábyrgðum raforku. Þær eru hluti af blekkingastarfsemi og braski með rafmagn, þar sem „orkusóðar“ geta keypt sér syndakvittanir af hinum sem sóða minna (eða lítið). Með þessu móti er kaupandinn, neytandinn, látinn halda að hann kaupi „hreina raforku“ (græna). Neytandinn er með öðrum orðum blekktur. Eins og lesendur vita gekk Bretland endanlega úr Evrópusambandinu nú um áramótin. Á heimasíðu bresku lögfræðistofunnar Pinsent Masons er fjallað um skattahliðina á þessu svindl-fyrirkomulagi, í grein ...
Lesa meiraÞórarinn Hjartarson skrifar: VALDHAFINN STÍGUR FRAM
Þingið í Washington samþykkti að ákæra Donald Trump til embættismissis fyrir uppreisnaráróður („incitement of insurrection“). Alvarlegra fyrir hann var samt það bann sem hann fékk frá samskiptamiðlunum. Og það segir meiri sögu. Eftir upphlaupið við bandaríska þingið í Capitol er sitjandi Bandaríkjaforseti útilokaður frá öllum helstu samskiptamiðlum (og um leið stærstu fjölmiðlum) netheima, Facebook, Instagram, Twitter, Google ...
Lesa meiraKári skrifar: ORKUMÁL SEM ORSÖK ÁTAKA OG ÁGREININGS
Mörgum stjórnmálamönnum er tamt á tungu, eftir nýjustu atburði í Washington, að segja árás hafa verið gerða á „lýðræðið“. En það gleymist alltaf að láta fylgja með svarið við spurningunni: lýðræði hverra? Lýðræði valdaklíkunnar í Bandaríkjunum, lýðræði almennings? Forsetanefnur jafnt sem ráðherrar apa hver upp efir öðrum staðlaðar skoðanir um „árás á lýðræðið“ og látast stórhneykslaðir á því. Trúverðugleiki þessa fólks sem þannig talar er hins vegar enginn. Fólk sem lifir og hrærist í fílabeinsturnum er í órafjarlægð frá veruleika almennings, hvort heldur er í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Í máli þess er ætíð holur hljómur ...
Lesa meira