Ein sem skýrir sig sjálf
Einsog stagbætt stjórnarskrá
sem Styrmir þarf að dæma
marga spretti Mogginn á
misjafnlega slæma.
Einsog stagbætt stjórnarskrá
sem Styrmir þarf að dæma
marga spretti Mogginn á
misjafnlega slæma.
Sæll Ögmundur
Glaðhlakkalegir voru þeir fóstbræður Davíð og Bush á fundi í
Istanbúl. Úr augum Davíðs skein aðdáun þegar hann leit með eigin
augum þessa einstæðu fyrirmynd.
Davíð Oddsson dýrkar Bush,
það dæmalausa undur,
við böðulinn hann bindur trúss
bljúgur einsog hundur.
...og þar sem ég er gamall nemandi dr. Ólafs Ragnars í
stjórnmálafræðunum, og kann því ýmislegt fyrir mér þó ég segi sjálf
frá, vil ég minna á eitt mikilvægt atriði sem fræðimönnum og
álitsgjöfum hefur yfirsést - og móðga þó vonandi engan - en það eru
forsetakosningarnar árið 1952. Þær sýna í hnotskurn, og í sögulegu
samhengi sem er auðvitað ómissandi sjónarhorn, hve glæsilegt
endurkjör Ólafs er í raun og veru. Þannig var að árið 1952 slógust
...
Auður Sigurrós Arnardóttir
Það er sú almenna og grímulausa mannfyrirlitning sem fram kemur
í orðum ritstjóra Morgunblaðsins sem fékk mig til skilja við
blaðið. Satt best að segja fór um mig hrollur þegar ég las pistil
hans 17. júní. Ég geymi þetta síðasta Morgunblað sem ég kaupi. Ég
geymi það til að minna mig á að stalínísk rétthugsun getur flutt
inn á hvaða heimilisfang sem er og ég geymi það til að minna mig á
að undir orðskrúði og kröfunni um ákveðið siðferði annarra lúrir
stundum svipuð afstaða til almennings og ríkjandi var í fjarlægu
landi fyrir miðja síðustu öld. Ég er hvorki heimsfræg né
fyrrverandi forseti og hvorki ég né fjölskylda mín eru í þeim
meirihluta sem Morgunblaðinu finnst að ekki geti gert kröfu um að
sýnd sé virðing og tillitssemi í opinberri umræðu. Ég er núlifandi
og...
Ólína
Ég er hjartanlega sammála Steingrími Ólafssyni í því sem fram
kemur í prýðilegri grein hans hér á síðunni 24/6 undir
fyrirsögninni Tvígengisvélin hikstar. Það
er rétt hjá honum að póltitískur mótor þeirra Davíðs Oddssonar og
Halldórs Ásgrímssonar hikstar heldur betur. Sennilega og vonandi er
hann að bræða úr sér. Ég er líka sammála þér Ögmundur að vinstri
menn eiga að semja við Samfylkingarkratana um myndun næstu
ríkisstjórnar, jafnvel gera kosningabandalag einsog Steingrímur
Ólafsson leggur til. En við megum ekki gera þetta ...
Sunna Sara
Var minnst á Kárahnjúkavirkjun fyrir kosningarnar vorið 1999? VG
var stofnað 6. febrúar 1999. Man einhver sem tók þátt um hvað
kosningabaráttan snerist það árið? Var verið að kjósa um
Kárahnjúkavirkjun? Mér vitanlega var hún ekki á dagskrá þá.
Eftirfarandi fór á milli spyrjanda og Ólafs Ragnars Grímssonar í
þættinum Ísland í dag á Stöð 2 21. júní ...
Pétur
Það er mér mikið undrunarefni sem fram kemur í pistli Þjóðólfs
hér á síðunni þar sem hann segist ekki hafa frétt af framboði frú
Auðar Bessadóttur til forsetaembættisins fyrr en í gær. Framboð
sitt boðaði Auður á blaðamannafundi í Öskjuhlíðinni á sumardaginn
fyrsta, 22. apríl s.l. Og einmitt þá var meðfylgjandi
mynd tekin af frambjóðandanum og áströlskum maka hans.
Beðist er velvirðingar á rauðum deplum í ...
Ingólfur
Svo lítið hefur farið fyrir forsetaframbjóðandanum Auði að ég
hafði ekki hugmynd um framboð hennar fyrr en í morgun þegar ég
renndi yfir skoðanakönnun Fréttablaðsins. Þar stimplar frú Auður
sig inn með eftirminnilegum hætti og nýtur nú hvorki meira né minna
en ...
Þjóðólfur
Í DV segir frá því að deilur hafi blossað upp milli
Sumarliða Ísleifssonar, ritstjóra Stjórnarráðssögunnar og Jakobs F.
Ásgeirssonar, þess manns sem ritar kaflann um Davíð Oddsson. En
þeir deila víst um innihald kaflans um Davíð. Að þessu tilefni verð
eftirfarandi bláhenda til:
Mjög er deilt hjá mönnum tveim,
þeir mikið vilja þræta
því sögu Davíðs sýnist þeim
að sífellt megi bæta.
Kveðja,
Kristján Hreinsson, skáld
Hann sagðist með gjörningi sínum hafa viljað leyfa þjóðinni að
"blessa" þessi lög líkt og gjörðist í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldis á Íslandi árið 1944.
Hvaða merkingu leggur þú í þessi orð forsetans? Ég hélt satt að
segja að hann hefði beitt synjunarvaldinu vegna þess að hann hefði
talið lögin geta verið háskaleg lýðræðinu ...
Þuríður Ófeigsdóttir
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Landsmenn fagna nú lokast sárið
því loksins kláraðist ótuktar árið
sprautu víst fáum
bættan hag sjáum
og fljótlega líður frá Cóvíd fárið.
Ég óska öllum árið gott
eftir óþverra pestina
Kófinu nú komum á brott
og kjósum svo í restina.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Bönkum ræna bannsettu,
bófum auðinn fólu.
Ráðherra festa á rakettu,
reikna braut um sólu.
...
Kári
Ráðherra forsætis rökin virði,
reglur gilda um frúna.
Faðmaði sjálf á Seyðisfirði,
en saklaus þykist núna.
...
Kári
Þingið í Washington samþykkti að ákæra Donald Trump til embættismissis fyrir uppreisnaráróður („incitement of insurrection“). Alvarlegra fyrir hann var samt það bann sem hann fékk frá samskiptamiðlunum. Og það segir meiri sögu. Eftir upphlaupið við bandaríska þingið í Capitol er sitjandi Bandaríkjaforseti útilokaður frá öllum helstu samskiptamiðlum (og um leið stærstu fjölmiðlum) netheima, Facebook, Instagram, Twitter, Google ...
Lesa meiraMörgum stjórnmálamönnum er tamt á tungu, eftir nýjustu atburði í Washington, að segja árás hafa verið gerða á „lýðræðið“. En það gleymist alltaf að láta fylgja með svarið við spurningunni: lýðræði hverra? Lýðræði valdaklíkunnar í Bandaríkjunum, lýðræði almennings? Forsetanefnur jafnt sem ráðherrar apa hver upp efir öðrum staðlaðar skoðanir um „árás á lýðræðið“ og látast stórhneykslaðir á því. Trúverðugleiki þessa fólks sem þannig talar er hins vegar enginn. Fólk sem lifir og hrærist í fílabeinsturnum er í órafjarlægð frá veruleika almennings, hvort heldur er í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Í máli þess er ætíð holur hljómur ...
Lesa meiraLeiðinlegasti dagur ársins er tvímælalaust gamlársdagur. Ekki vegna þess að hann sé í sjálfu sér verri en aðrir dagar ársins heldur vegna hins að honum er spillt með óþarfa hávaða, drykkju og látum. Það verður ekki afsakað með því að „þetta sé síðasti dagur ársins“. Sá ósiður, má segja plagsiður, hefur mótast á Íslandi að kunna sér ekki hóf í neinu. Það sást vel árin fyrir hrunið mikla þar sem „allir ætluðu að verða ríkir“ og helst á einni nóttu. Enginn mátti vera minni maður en næsti maður, ekki skulda minna en næsti maður, ekki ferðast minna en næstir maður eða byggja minna hús en ...
Lesa meira... Kórónukreppan eykur misskiptinguna í samfélaginu. Það er óleystur félagslegur vandi að kapítalismi dagsins í dag þarf ekki allt þetta fólk til að halda uppi framleiðslukerfi sínu. Hvað á þá að gera við hina sem er ofaukið? Þeir breytast úr virkum samfélagsborgurum í ómaga. Borgaralaun þýðir að „launþeginn“ missir allt samband við atvinnulíf, vinnufélaga, stéttarfélag og sköpun í samvinnu við aðra. Sömuleiðis missir hann vopnið sem samstaðan gefur verkafólki til að bæta stöðu sína og breyta samfélaginu, og verður valdalaus.
Þar að auki: Það er fræðilega hægt að sjá fyrir sér sósíaldemókratískt velferðarríki (norrænt módel fyrir aldamót) þar sem meirihluti þegnanna væri iðjulaus á „sósíalnum“, en í harðkapítalískum heimi næstu ára og áratuga er það ekki fræðilegur möguleiki ...
...
Lesa meiraTrumpisminn sem pólitísk stefna tengist öðru fremur neikvæðri afstöðu til „hnattvæðingarstefnu“. Afstaða bandarískra stjórnvalda til þessa fyrirbæris er afgerandi hluti af stjórnmálum risaveldisins eina – og okkur hina jarðarbúana skiptir hún líka býsna miklu máli. „America is back“ hrópaði Joe Biden eftir kosninganóttina og vísaði til þess forustuhlutverks í alþjóðamálum sem Trumpstjórnin hefði sagt sig frá en skyldi nú tekið upp aftur.
Það er orðin viðtekin venja að kenna heimskapítalismann eftir 1990 við „hnattvæðingu“. Þetta er jafnframt það tímabil sem ...
Gott dæmi um það sem fram kemur í greinnni er áform um byggingu verksmiðju hér á lamdi til að fanga 10 millj. tonn af koltvísýringi úr andrúmsloftinu og framleiða úr honum 300 þús. tonn af umhverfisvænu eldsneyti. Þessi fjárfesting upp á 140 milljarða kr. á að skila arði en hvernig? Með því að selja til aðila sem fá frádrátt frá sköttum með því að nota umhverfisvænt eldsneyti. En er þetta umhverfinu í hag? Koltvísýringurinn sem er fangaður er losaður aftur út í andrúmsloftið við bruna. Sem sagt núll ávinningur. Kemur þetta í veg fyrir ...
Lesa meira