Hnöttótt eftir allt saman? Össur boðar róttæka endurskoðun
Samfylkingin stendur í ströngu. Innan hennar á sér stað frjó og
fordómalaus málefnavinna sem á sér lítil takmörk. Allir muna eftir
Evrópuumræðunni sem var til lykta leidd með fyrirfram gefinni
niðurstöðu þess efnis að Íslendingar ættu að ganga í ESB - og helst
ekki seinna en í gær.
Og nú er að hefjast opin og hressileg málefnavinna um einkavæðingu
innan heilbrigðisþjónustunnar til þess að koma böndum á það
sjúklega átvagl sem heilbrigðiskerfið er að dómi samfylkingarmanna.
Hér verður að sjálfsögðu um algerar frumrannsóknir að ræða á vegum
fylkingarinnar enda ekkert mark takandi á reynslu annarra þjóða í
þessum efnum. Já, það er sannarlega ekki ónýtt að til sé hér á
landi stjórnmálaflokkur sem stundar markvissa málefnavinnu af þessu
tagi og ekki er verra þegar niðurstaðan liggur nánast í loftinu, ef
svo má að orði komast.
Annað sem Samfylkingin setti á oddinn á landsfundinum var að fara
nú þegar í markvissa málefnavinnu um það hvort jörðin sé flöt. Af
þessu tilefni sagði formaðurinn Össur Skarphéðinsson í opnunarræðu
sinni að það væri orðið löngu tímabært að taka þann "róttæka slag".
"Ég hef lengi haft ákveðnar efasemdir um að jörðin sé flöt", sagði
hann. "Ágætu félagar, ég spyr ykkur, er ekki kominn tími til að
skoða málin upp á nýtt? Er ekki kominn tími til að velta því
alvarlega fyrir sér, kæru félagar, hvort jörðin okkar sé jafnvel
hnöttótt, svo ólíklegt sem það kann nú að virðast?" Góður rómur var
gerður að máli formannsins og ætlaði lófaklappinu seint að
linna.
Já, Össur Skarphéðinsson og flokkur hans á hrós skilið. Ég var,
eins og reyndar þorri þjóðarinnar, orðinn hundleiður á þeirri
andlegu stöðnun og lognmollu sem ríkt hefur í íslenskum stjórnmálum
um árabil. Með tilkomu Samfylkingarinnar blása nú loksins ferskir
vindar um íslenskt samfélag og í ranni hennar þrífst og dafnar
hugmyndasmiðja á heimsmælikvarða. Þessu öllu ber að fagna af heilum
hug og óska ég íslenskum jafnaðarmönnum innilega til hamingju með
fræðileg vinnubrögð og ómetanlegar frumrannsóknir í málefnavinnunni
á komandi misserum og árum.
Þjóðólfur