Beint á leiðarkerfi vefsins

Fjölmiðlar

12. Febrúar 2003

Þorleifur Óskarsson skrifar: Framsóknarmenn vanda ungu fólki ekki kveðjurnar

Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins gerir heldur lítið úr ungu fólki og skoðunum þess í Fréttablaðinu 29. janúar s.l. Tilefnið er að ungt fólk hefur verið áberandi í baráttunni gegn óskabörnum Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar: Kárahnjúkavirkjun og álveri auðhringsins Alcoa í Reyðarfirði. Magnús heldur því fram að unga fólkið hafi látið blekkja sig og í orðum hans liggur að það hafi ekki vit til að mynda sér skoðanir. Það hafi látið ómerkilega áróðursmeistara fóðra sig á lygi og gefið sig tilfinningunum á vald. Og tilfinningar eru ekki að skapi Íslands framsóknartöffara, þeir skoða málin jafnan kalt og yfirvegað, þeir eru “kúl”, þeir bregða sér ofan í frystikistu áður en þeir taka á málunum.  Magnús veifar því skynsemisstefnu Framsóknarflokksins framan í unga fólkið og vill upplýsa það um samhengið í gangverki samfélagsins. Þar endurtekur hann gömlu tugguna sem framsóknarmenn eru búnir að jórtra á eins lengi og elstu menn muna. Með leyfi hæstsvirts forseta byrjar þessi forni kvöldvökuslagari svona: “Til þess að standa undir öflugu velferðarkerfi þurfum við að hafa öflugt atvinnulíf”. Lengra þarf ekki að kveða og allir þekkja viðlagið. Stórasannleik þarf ekki einu sinni að raula fyrir leikskólabörn og á meðal þeirra og þjóðarinnar gætir reyndar sívaxandi þreytu. Þá gerðust þau skemmtilegu tíðindi nýverið að einn fréttamaður sjónvarpsins bað háttvirtan umhverfisráðherra að gjöra svo vel að stoppa þegar hún var að byrja að jarma Stórasannleik. Hann gaf henni þá tímabæru áminningu að allir vissu að það þyrfti peninga til að reka velferðarkerfi.

 

Á valdi tilfinninganna og líka dónar

 

Eftir þennan stutta útúrdúr er rétt að líta á hvað þingmaðurinn Magnús Stefánsson hefur meira fram að færa um æsku landsins. Svo ótrúlegt sem það nú kann að virðast er engu líkara en hann líti á ungt fólk í andstöðu við ríkjandi stjórnarstefnu svipuðum augum og þau ólánsömu ungmenni sem ánetjast hafa fíkniefnum. Og hinir fullorðnu áróðursmeistarar sem hafa haft þessi slæmu áhrif eru þá væntanlega í hlutverki eiturlyfjainnflytjendanna og dópsalanna. Kannski framsóknarmenn ætli að lofa fyrir komandi kosningar nokkrum milljörðum í heilbrigða skoðanamyndun eins og þeir gerðu varðandi fíkniefnavandann fyrir síðustu kosningar. Rétt er að gefa Magnúsi orðið til þess að varpa örlitlu ljósi á samlíkinguna hér að ofan: “Áróðurinn gegn málinu [stóriðjustefnunni á Austurlandi] birtist víða og í mismunandi myndum. Áberandi er hve spilað er á skólanema, þar sem þeir eru æstir upp gegn málinu en án málefnalegra raka. Í viðtölum við nema sem hafa lent í slíkri umræðu kemur berlega fram hvað margir þeirra hafa mótað afstöðu gegn málinu án málefnalegra raka, heldur hefur verið spilað inn á tilfinningalegar nótur og málavextir afskræmdir.” Magnús staglast á málefnalegum rökum en ekki eru skrif hans ofhlaðin þeim. Þvert á móti svífur yfir vötnunum málefnalegur raki og meðfylgjandi fúkkalykt sem gjarnan sest á þá sem verið hafa við stjórnvölinn allt of lengi.

            Unga fólkið er ekki bara á valdi tilfinninganna því sum ungmenni hafa í framhaldinu farið inn á vafasamar brautir sýnt ótvíræða andfélagslega hegðun, að sögn Magnúsar. Og hvernig koma þessi afvegaleiddu ungmenni fram við þau hin sómakæru sem styðja virkjun og álver? Gefum Magnúsi orðið: “einn þeirra sem barist hefur einarðlega fyrir málinu [hefur sagt] að hann hafi orðið fyrir hótunum vegna þess og dæmi eru um að andstæðingar málsins hafi hrækt á fylgjendur málsins á almannafæri.” Svona framkoma á auðvitað ekki að þekkjast í siðuðu samfélagi en fáein dæmi duga þó skammt til að kveða upp einhvern stóradóm um allt það unga fólk sem er á móti ríkjandi stóriðjustefnu.

 

Hvað er vísvitandi vanþekking Magnús?

 

Mér finnst grein Magnúsar Stefánssonar afar ósanngjörn í garð þess unga fólks sem beitt hefur sér gegn Kárahnjúkavirkjun og stóriðjustefnu núverandi ríkisstjórnar. En viðbrögð hans þurfa svo sem ekkert að koma á óvart, Framsóknarflokkurinn hefur úrelta stefnu að verja - stefnu sem unga fólkinu finnst gamaldags og tímabært að hýsa með öðrum fornminjum á Þjóðminjasafni Íslands.

            Í góðu samræmi við framsóknarhefðina er aðeins eitt sem kalla má frumlegt í máli Magnúsar en það er þegar hann segir að andstæðingarnir spili á tilfinningar unga fólksins með “vísvitandi vanþekkingu”. Þetta finnst mér óvenjulega að orði komist og gaman væri að þingmaðurinn skýrði þetta fyrirbæri nánar. Er þetta kannski bundið við Framsóknarflokkinn og starfshætti hans; með öðrum orðum fagurgali um það sem kallað er á óheflaðri íslensku lygi? Eða er það vísvitandi vanþekking þegar menn nenna ekki að kynna sér málavöxtu eins og raunin virðist vera með marga stjórnarþingmenn þegar um er að ræða skýrslur og álit um Kárahnjúkavirkjun og álver í Reyðarfirði? Svar óskast sem allra fyrst, því íslenskan er jú okkar mál.

 

Þorleifur Óskarsson

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Fjölmiðlar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta