GALIÐ RÚV FRUMVARP HLEÐUR UNDIR GUNNLAUG SÆVAR
Formaður Útvarpsráðs er Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson. Mér skilst að hann sé sjálfstæðismaður
af frjálshyggjugerðinni. Slíkir menn eru almennt á móti
ríkisstofnunum nema náttúrlega að þeir fái þær til að ráðskast með.
Og Ríkisútvapið fól
Sjálfstæðisflokkurinn Gunnlaugi Sævari í hendur.
Þetta er sami stjórnmálaflokkur og segist vera á móti ríkisrekstri!
Það er margt grínið.
Nú er komið fram frumvarp sem sennilega er það algalnasta sem fram
hefur komið á Alþingi í langan tíma. Ég ætla að láta bíða betri
tíma að fara nánar í saumana á því; á hvern hátt það vegur að
réttindum starfsmanna og veikir stofnunina í menningarlegu tilliti.
Ég ætla hér að láta nægja að staðnæmast við formann Útvarpsráðs
einan. Hann er greinilega mjög reiður yfir ráðningu nýs
fréttastjóra á RÚV - eftir að óskabarn ríkisstjórnarinnar afþakkaði
embættið - og vill kalla hann inn á sitt teppi. Samkvæmt
Fréttablaðinu vill formaður Útvarpsráðs nú svör
við fréttastefnu nýs fréttastjóra.
Gott og vel. Aldrei er slæmt að ræða málin. Vandinn er sá að umræddur formaður sem svona bregst við og talar er fulltrúi flokks sem þykist vera á móti ríkisafskiptum. Það má til sanns vegar færa en þó aðeins þegar aðrir eiga í hlut. Þegar hins vegar Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur eða fulltrúar hans hafa forræði yfir ríkisstofnunum og fá því þar af leiðandi við komið að fara sínu fram, eru menn kallaðir á teppið.
Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er áfram gert ráð fyrir
því að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi skipi í stjórn RÚV. Það
sem meira er, ríkisstjórnarmeirihlutinn á að ákveða hvernig
fréttastofan starfar, það er að segja, samkvæmt hvaða
reglum og skilmálum. Ég hvet lesendur til þess að kynna sér
frumvarp ríkisstjórnarinnar, klæðskerasniðið fyrir Gunnlaug Sævar
og félaga hans í Útvarpsráði svo þeir geti samkvæmt laganna bókstaf
kallað forsvarsmenn Fréttastofu útvarps inn á sitt teppi. Nú kann
það að vera umdeilanlegt hversu langt forrræði stjórnmálamanna eigi
að ná, en næði frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga væri það
beinlínis lagaskylda Gunnlaugs Sævars og félaganna úr
SUS og Varðbergi að ritstýra
fréttastofum Ríkisútvarpsins. Viljum við
það? Ekki ég.
Sjá nánar stjórnarfrumvarpið hér. Í þessu samhengi vek ég
sérstaklega athygli á 8. og 9. gr.: http://www.althingi.is/altext/131/s/0974.html