Eldri greinar Apríl 2005
Í umræðum um Ríkisútvarpið á Alþingi sögðu fulltrúar
ríkisstjórnarinnar að það tilheyrði ekki "nútímarekstri"
að tryggja starfsmönnum aðgang að stjórn stofnana! Í kjarasamningum
í byrjun níunda áratugar síðustu aldar var samið um að efla
atvinnulýðræði í opinberum stofnunum. Því miður var ákvæðum þessara
samninga sem BSRB gerði við Ragnar Arnalds þáverandi
fjármálaráðherra, ekki alls staðar fylgt eftir. Það var þó gert í
Ríkisútvarpinu...Nú standa þessir flokkar að lagabreytingu sem á að
úthýsa fulltrúum starfsmanna úr stjórn Ríkisútvarpsins.
Atvinnulýðræði er sagt gamaldags rugl. Nú er það valdstjórnin sem
blífur! Þetta heldur stjórnarmeirihlutinn að sé nútímalegt þegar
hann í reynd er að reyna að skrúfa okkur aftur til forstjóraveldis
fortíðarinnar. Hversu langt aftur í tímann skyldu þau vilja halda?
Það verður fróðlegt að ...
Lesa meira
Formaður Útvarpsráðs er Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson. Mér skilst að hann sé sjálfstæðismaður
af frjálshyggjugerðinni. Slíkir menn eru almennt á móti
ríkisstofnunum nema náttúrlega að þeir fái þær til að ráðskast með.
Og Ríkisútvapið fól
Sjálfstæðisflokkurinn Gunnlaugi Sævari í hendur.
Þetta er sami stjórnmálaflokkur og segist vera á móti ríkisrekstri!
Það er margt grínið.....Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar er
áfram gert ráð fyrir því að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi
skipi í stjórn RÚV. Það sem meira er, ríkisstjórnarmeirihlutinn á
að ákveða hvernig fréttastofan starfar, það er að
segja...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum