Eldri greinar 1993
Birtist í fréttabréfi Öryrkjabandalags Íslands 1993
Enn erum við Íslendingar í vanda staddir. Auðvitað eru vandamál
hluti af lífinu sjálfu, og sá einn getur sæst við lífið, sem getur
litið á vanda sem verkefni til að leysa, og verið glaður í bragði,
þótt að honum steðji erfiðleikar.
Vandinn sem steðjar að þjóðinni er sá, að menn eru ekki vissir um
hvað það er að vera Íslendingur. Menn virðast ekki vera öryggir um
það hvort Íslendingar séu þjóð eða úthverfi í stórborg. Eða
verstöð. Sumir telja reyndar að hér búi einungis hópur evrópskra
neytenda.
Fyrir nokkur hundruð árum síðan - eins og frægt er - var rætt um að
flytja Íslendinga í heild sinni, suður á Jótlandsheiðar. Rétt eins
og kindahjörð er flutt af einum afrétti á annan. Að mati þeirra sem
þannig töluðu, voru Íslendingar hjörð, hópur allslausra ...
Lesa meira
Birtist í fréttabréfi Öryrkjabandalags Íslands 1993
Enn erum við Íslendingar í vanda staddir. Auðvitað eru vandamál
hluti af lífinu sjálfu, og sá einn getur sæst við lífið, sem getur
litið á vanda sem verkefni til að leysa, og verið glaður í bragði,
þótt að honum steðji erfiðleikar.
Vandinn sem steðjar að þjóðinni er sá, að menn eru ekki vissir um
hvað það er að vera Íslendingur. Menn virðast ekki vera öryggir um
það hvort Íslendingar séu þjóð eða úthverfi í stórborg. Eða
verstöð. Sumir telja reyndar að hér búi einungis hópur evrópskra
neytenda.
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Landsmenn fagna nú lokast sárið
því loksins kláraðist ótuktar árið
sprautu víst fáum
bættan hag sjáum
og fljótlega líður frá Cóvíd fárið.
Ég óska öllum árið gott
eftir óþverra pestina
Kófinu nú komum á brott
og kjósum svo í restina.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Bönkum ræna bannsettu,
bófum auðinn fólu.
Ráðherra festa á rakettu,
reikna braut um sólu.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum