Efnahagsmál
2. Júlí 2010
ŢÖRF MARKVISSRA AĐGERĐA

Hæstiréttur hefur úrskurðað gengistengd lán ólögleg. Lántakendur hrósa sigri. Þeir segja margir hverjir að eftir að gengistenging lána hafi verið numin brott skuli þeir hlutar lánasamningsins sem ekki eru í blóra við lög standa. Þetta kveðast lánveitendur hins vegar ekki ætla að sætta sig við og hafa lýst því yfir að þeir muni leita réttar síns fyrir dómstólum. Gott og vel. Þangað eru þessi mál komin. Ástæðan er sú að stjórnvöldum hefur ekki tekist að færa lánamál fjölskyldna og fyrirtækja inn í farveg sem almenn sátt er um í þjóðfélaginu. Þess í stað var lántakendum beint inn í hinn sértæka farveg annars vegar (sem vissulega er góðra gjalda verður, svo sem nýsamþykkt lög um greiðsluaðlögun, en of takmarkaður) og til dómstóla hins vegar. Sagt var: Þeir sem telja á sér brotið leiti til dómstóla. Nú liggur niðurstaða dómstóla fyrir. Hana ber að virða. Ef lánveitandinn telur á sér brotið getur hann farið sömu leið og lántakandinn.
Spurningin er nú sú, hvort fjármálafyrirtækin telji að Seðlabankinn og FME hafi tekið af sér ómakið. Þau séu einfaldlega laus allra mála. Með tilmælum þessara aðila sé fundin leið sem þau geti farið. Svo er ekki. Í yfirlýsingu FME og Seðlabanka eru tekin af öll tvímæli um að tilmælin séu til bráðabirgða: „Á meðan ekki hefur verið skorið úr um umfang og lánakjör þeirra samninga..." segir í yfirlýsingu FME.
Mín skoðun er sú, að þrátt fyrir fyrirvara FME og Seðlabanka, hafi það verið mjög misráðið að gefa út tilmæli um vaxtakjör ofan í dóm Hæstaréttar. Ef lánveitendur efast um skyldur sínar og réttmæti niðurstöðu Hæstaréttar eða telja þar eitthvað óútkljáð, verða þeir að fá niðurstöðu fyrir dómi. Hagsmunsamtök heimilanna hafa hvatt til þess að lagalegri óvissu verði eytt með þessum hætti.
Hlutverk ríkisvaldsins er í mínum huga nú tvíþætt:
1) Gera allt sem í valdi framkvæmdavaldsins stendur til að tryggja skjóta úrlausn mála fyrir dómstólum um þau atriði sem aðilar að lánasamningum kunna að véfengja.
2) Setja í gang markvissa vinnu um almennar aðgerðir í þágu skuldara.
Þetta ber ríkisvaldinu að gera þegar í stað. Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er þessu andvígur - sem hann hefur verið til þessa - þá þarf það að koma fram. Þjóðin á rétt á opinni umræðu um þessi mál.
Frá lesendum
3. Júní 2013
UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU
Að því þú virðist vera einn af bestu þingmönnum og lætur þig allt mannlegt varða að þá langar mig að spurja að einu. Allir Íslendingar sem hafa haft búsetu lengur en 6 mánuði á Íslandi eiga að vera inni í þessu svokallaða velferðarkerfi. Eru einhverjar undantekningar á því? Má undanskilja aðila undan þessu velferðarkerfi, vegna t.d. skilnaðarmála foreldra. Ég spyr vegna þess að við erum í þessari stöðu og best bara að setja hér inn link á blogg-ið mitt, þar sem þetta kemur ...
Kjartan
Kjartan
27. Maí 2013
HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?
Það vill enginn láta hafa vit fyrir sér. Fyrir utan það að það er tæknilega ómögulegt...
Einar
Einar
25. Maí 2013
LUGU SIG TIL VALDA?
Eftir að stjórnarsáttmálinn leit dagsins ljós vöknuðu strax grunsemdir um að núverandi ríkisstjórn hefði logið sig til valda. Stjórnarflokkarnir eru að setja á fót nefndir sem eiga að kanna hvort raunhæft sé að framkvæma allt það sem lofað var fyrir kosningarnar eins og að lækka höfuðstól lána um 20%! Ef ekki kemur ...
Jóel A.
Jóel A.
25. Maí 2013
VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖĐU!
Óttalegan vesaldóm er að finna í málflutningi nýrrar stjórnarandstöðu. Það er eins og enginn ætli að þora að taka á þessu forréttindaliði sem búið er að koma fyrir að nýju uppi á valdastólunum. Og þegar eru þau farin að boða misréttisstefnu. Allir gömlu hrunverjarnir mættu á flokkskontórana til að samþ ykkja og fagna nýjum stjórnarsáttmála.
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara
Póstlisti
Frjálsir pennar
3. Maí 2013
Helgi Guđmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIĐINGU
...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...
25. Apríl 2013
EINAR ÁRNASON HAGFRĆĐINGUR: STÖĐVUM ÓSANNINDIN
Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...
20. Apríl 2013
Einar Árnason skrifar: OPIĐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST
...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum. Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...












