Efnahagsmál
30. Mars 2005
BLIKKANDI VARNAĐARLJÓS Í FJÁRMÁLAKERFI
Fréttir sem nú berast innan úr bankakerfinu hljóta ađ vekja ríkisstjórnina – og okkur öll - til umhugsunar. Í morgun var sagt frá ţví í fréttum ađ yfirdráttarlán heimilanna hafi aukist um 1.500 milljónir króna í febrúar og vćri ţetta annar mánuđurinn í röđ sem yfirdráttarlán heimilanna hćkki međ ógnvćnlegum hrađa. Fram kom ađ fyrstu tvo mánuđi ársins hćkkuđu yfirdráttarlánin um 4,1 milljarđa og standa ţau núna í röskum 58 milljörđum króna. Fjölmiđlar byggja ţessar upplýsingar á Vegvísi Landsbankans. Alls námu skuldir heimilanna hjá bönkum og sparisjóđum í lok febrúar 340 milljörđum króna, upphćđ sem í sjálfu sér segir lítiđ án frekari skýringa. Hins vegar sést ađ yfirdráttarlánin eru hátt hlutfall ţessara skuldbindinga.
Ţađ sem einkum er umhugsunarvert er ţetta: Á tímabilinu ágúst til desember á síđastliđnu ári drógust yfirdráttarlánin saman. Á ţví tímabili sáu margir sér hag í ţví ađ endurfjármagna yfirdráttarlán međ hagstćđari íbúđarlánum til lengri tíma. Áđur en ţessi endurfjármögnun hófst námu yfirdráttarlánin 60,5 milljörđum króna. Nú stefnir í ađ ţessu marki sé náđ ađ nýju. Ţađ ţýđir ađ fólk sem nú er búiđ ađ veđsetja sig í botn (međ veđi í húsnćđi á yfirsprengdu verđi) til ţess ađ ná utan um sín fjármál er aftur komiđ í ţrot. Viđ slíkar ađstćđur má ekkert út af bera. Í ţví sambandi er rétt ađ horfa sérstaklega til verđs á fasteignum. Ef ţađ hrynur eđa rýrnar ađ verđgildi er vođinn vís ţví ţar međ rís veđiđ ekki lengur undir ţeim skuldbindingum sem eigendur eignanna hafa undirgengist. Síđan er hitt ađ jafnvel ţótt fólk ćtli ekki ađ flytja úr húsnćđi sínu og ţannig reyni ekki á fasteignaverđiđ, ţá er hitt ađ ekki mega tekjur fólks dragast saman, ađ ekki sé minnst á atvinnuleysi, svo allt fari úr böndum. Ef fjölgar í ţeim hópi sem ekki getur stađiđ viđ skuldbindingar sínar er alltaf sú hćtta ađ keđjuverkun verđi, ađ eitt leiđi af öđru…
Ţađ er mikilvćgt ađ ţjóđfélagiđ horfi allt og í sameiningu á ţessi máli af raunsći og ábyrgđ. Verkalýđshreyfingin, međ BSRB í broddi fylkingar gekkst fyrir umrćđu um skuldastöđu ţjóđarbúsins, fyrirtćkja og heimila, á síđastliđnu sumri og var ţá hvatt til varkárni í ţessum efnum. Ástćđa er til ađ ítreka ţau varnađarorđ.
Vinstrihreyfingin grćnt frambođ hefur lagt fram ţingsályktunartillögu ţar sem ţessi mál eru reifuđ og ţví međal annars beint til Fjármálaeftirlitsins "ađ hugađ verđi vandlega ađ áhćttumati í bankakerfinu, svo sem hvađ varđar áhrif af snöggri gengislćkkun krónunnar eđa lćkkun fasteignaverđs. Markmiđiđ verđi ađ hrađur vöxtur útlána ađ undanförnu skapi ekki hćttu fyrir efnahagslífiđ og fariđ verđi yfir eiginfjárlágmörk og áhćttugrunn fjármálastofnana í ţví ljósi".
Ég hvet lesendur til ţess ađ kynna sér efni ţessarar ţingsályktunartillögu en ţar er ađ finna, auk tillagna VG um úrrćđi, margar nytsamar upplýsingar um stöđu efnahagsmála. (sjá nánar HÉR)
Vegvísir Landsbanakans sem vitanđ var til er HÉR
Frétt RÚV sem vísađ er til er HÉR
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












