Beint á leiđarkerfi vefsins

Efnahagsmál

11. Nóvember 2010

JÓHANNES NORDAL OG TVÖ PRÓSENTIN


...Að mínum dómi þarf að afnema vísitölubindingu lána
. Enda þótt greiðslubyrði vísitölubundinna lána sé ekki eins þung framan af og óvísitölubundinna lána (því verðbólguþátturinn er tekinn að láni og færður yfir á höfðustólinn) þá verður lánið dýrara þegar upp er staðið.  Í kreppu er vísitölubinding stórhættuleg, því á meðan allar efnahagsstærðir eru rýrðar...er fjármagnið varið. Þegar síðan ofan á verðbæturnar kemur drjúg vaxtaprósenta þýðir þetta flutning á verðmætum frá heimilum og atvinnurekstri til fjármálastofnana...Þar til vísitölubinding verður afnumin ber að setja tveggja prósenta þak á vexti vísitölubundinna lána. Það væri eins skynsamlegt nú  og það hefði verið fyrir þrjátíu árum þegar þáverandi seðlabankastjóri talaði fyrir því.

6. Júlí 2010

NÚ ŢARF AĐ VANDA SIG

Birtist í DV 05.07.10.
DVÉg er ekki í hópi þeirra sem telja að efnahagsvanda þjóðarinnar eigi að leysa í dómssölum.  Að því marki sem stjórnvöld geta yfirleitt komið að málum ber að leita lausna með lögum. Þannig hefði með lögum mátt nema vísitölutengingu lána tímabundið úr gildi óðaverðbólgumánuðina í kjölfar hrunsins. Það lagði þáverandi formaður BSRB til á fundi með þáverandi oddvitum ríkisstjórnar í október 2008. Því var hafnað. Núverandi ríkisstjórn hefur einnig hafnað slíkum almennum lausnum. Ákveðið var að fara hina „sértæku" leið. Þeir sem ættu í sérstökum vandræðum skyldu fara í „greiðsluaðlögun" og teldu fólk eða fyrirtæki á sér brotið skyldu viðkomandi leita til dómstóla....Ekki á að lesa meira í þessa yfirlýsingu Seðlabankans og FME en í henni er í raun fólgið. Um er að ræða leiðbeiningar til bráðbirgða eða þar til dómstólar hafa kveðið upp sinn úrskurð....

2. Júlí 2010

ŢÖRF MARKVISSRA AĐGERĐA


...Sagt var: Þeir sem telja á sér brotið leiti til dómstóla. Nú liggur niðurstaða dómstóla fyrir. Hana ber að virða. Ef lánveitandinn telur á sér brotið getur hann farið sömu leið og lántakandinn. Spurningin er nú sú, hvort fjármálafyrirtækin telji að Seðlabankinn og FME hafi tekið af sér ómakið. Þau séu einfaldlega laus allra mála. Með tilmælum þessara aðila sé fundin leið sem þau geti farið. Svo er ekki. Í yfirlýsingu FME og Seðlabanka eru tekin af öll tvímæli um að tilmælin séu til bráðabirgða... Ef lánveitendur efast um skyldur sínar og réttmæti niðurstöðu Hæstaréttar eða telja þar eitthvað óútkljáð, verða þeir að fá niðurstöðu fyrir dómi. Hagsmunsamtök heimilanna hafa hvatt til þess að lagalegri óvissu verði eytt með þessum hætti. Hlutverk ríkisvaldsins er í mínum huga nú tvíþætt...

8. Apríl 2010

KALLAĐ EFTIR RÖKUM

Birtist í Fréttablaðinu 07.04.10.
FB logoHluti af stofnanaveldinu íslenska - sá hinn sami og vildi ljúka Icesave samningunum sem fyrst í sumar - leggur sig nú í líma við að sýna fram á að frestun samninganna hafi valdið okkur ómældu tjóni. Reyndar ekki alveg ómældu - í eiginlegri merkingu - því sumir hafa reiknað meint tjón af nokkurri nákvæmni. Hér eru  á ferðinni auk Fréttablaðsins, fræðimenn, núverandi og fyrrverandi við Háskóla Íslands, hagdeild ASÍ, nokkrir starfsmenn Seðlabankans og stjórnmálamenn, núverandi og fyrrverandi. Þessir aðilar eiga það flestir sammerkt að vitna óspart hver í annan og gera þannig fullyrðingu eins að eigin rökstuðningi, án þess þó að fullyrðingin hafi verið annað en getgátur einar....

14. Janúar 2010

AĐ VINNA SIG ÚT ÚR KREPPU

Birtist í Fréttablaðinu 21.12.09.
Frettablaðið...Ríkisstjórn VG og Samfylkingar hefur valið þá leið að reyna að fara bil beggja við þessar aðstæður - feta eins konar milliveg. Á þessu ári er hallinn á ríkissjóði um eitt hundrað og sextíu milljarðar. Á næsta ári má gera ráð fyrir að hann verði um eitt hundrað milljarðar. Þetta er umtalsverður halli en ástæðan fyrir honum er að sjálfsögðu sú, að við viljum komast hjá meiri niðurskurði og skattlagningu en raunin verður á. Við gerum okkur grein fyrir því að langt er gengið í hvoru tveggja, niðurskurðinum og skattlagningunni, og hefur því margoft verið lýst yfir af okkar hálfu að þessi mál verði að vera í stöðugri endurskoðun. Hitt er svo annað mál að þótt kreppan sé okkur erfið er ýmis sóknarfæri að finna....

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Efnahagsmál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta