Efnahagsmál
18. Desember 2005
TILLAGA UM EFNAHAGSÚRRÆÐI: RÍKISSTJÓRNIN SEGI AF SÉR

...Glæpur þessarar ríkisstjórnar gagnvart íslensku atvinnulífi er mikill. Þau fyrirtæki sem nú er verið að flæma úr landi vegna atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar eiga sér mörg langa uppbyggingarsögu ... Nú þegar Valgerður, ráðherra og ríkisstjórnin, sem ber ábyrgð á öllu því sem úrskeiðis hefur farið, segist vera að hugsa málin, jafnvel ætla að grípa til aðgerða – þá hygg ég að hrollur fari um margan manninn. Vissulega þarf að grípa til ráðstafana en forsenda skynsamlegra ráðstafana í efnahagsmálum er augljós...
9. September 2005
UM KRÓNUNA, EVRUNA, GENGIÐ OG RÍKISSTJÓRNINA
Fyrir fáeinum dögum birtist áhugavert lesendabréf hér á síðunni frá Þráni þar sem hann fjallar um íslensku krónuna og segir að hún sé hætt að veita réttar upplýsingar um stöðu hagkerfisins. Hann segir að nær væri fyrir okkur að taka upp Evruna. Þráinn segir m.a.: "Sjálfstæður gjaldmiðill í örsmáu hagkerfi elur á spillingu og spákaupmennsku ...En hvers vegna skyldi krónan vera sterk? Það er vegna þess að pumpað er fjármagni inn í hagkerfið vegna stóriðjuframkvæmda. Eftirspurn eftir krónunni styrkir hana svo mjög að hún er hætt að gefa nokkra raunhæfa mynd af íslensku atvinnulífi. Þetta er rétt hjá Þráni og á þetta hef ég einnig bent. Afurðir okkar hætta hreinlega að seljast og ferðamenn hætta að hafa efni á að koma til landsins ef fer fram sem horfir. En hvað skyldi nú ríkisstjórnin gera við þessar aðstæður...?
2. September 2005
VERSLUNARRÁÐIÐ VILL LOKA NÝSKÖPUNARSJÓÐI
...Við nánari lestur á yfirlýsingu Verslunarráðsins kemur í ljós að hið sama er hér uppi á teningnum. Verslunarráðið er einfaldlega að hvetja til þess að ríkið afhendi fjármálastofnunum þá fjármuni til ráðstöfunar sem nú renna til Nýsköpunarsjóðs. Málatilbúnaður er því sambærilegur við aðförina að Íbúðalánasjóði. Það “er mikilvægt”, segir í yfirlýsingu Verslunarráðsins... Skyldi vandi Nýsköpunarsjóðs ekki fyrst og fremst vera sá að hann þurfi meira fjármagn. Ríkisstjórnin lætur, sem kunnugt er, nýsköpunarfjármagn renna ótæpilega til stuðnings fyrirtækjum sem hún telur þurfa aðstoðar við, Alcoa og annarra slíkra, en vanrækir hins vegar Nýsköpunarsjóð.Þetta er vandinn: Hve Nýsköpunarsjóði er þröngur stakkur skorinn af hálfu fjárveitingavaldsins. Sá vandi verður ekki leystur með því að...
31. Ágúst 2005
ÍSLAND HAFT AÐ FÉÞÚFU
Fréttir sem nú berast úr fjármálalífinu hljóta að vekja þjóðina til umhugsunar um hvert stefnir í íslensku efnahagslífi. Vextir eru, sem kunnugt er, mjög háir hér á landi.....Þetta þýðir að fjármálamenn – erlendir og innlendir – taka peninga að láni þar sem vextir eru lágir og flytja þá til Íslands þar sem vextir eru háir....Þetta er í sjálfu sér ekki nýtt því á undanförnum misserum hefur verið dælt gífurlegu fjármagni erlendis frá inn í íslenskt efnahagskerfi. Það sem er nýtt er að fréttir berast nú af því að erlend verðbréfafyrirtæki eru farin að gefa út skuldabréf í íslenskum krónum. Um er að ræða 12 milljarða á aðeins örfáum dögum...Gengi krónunnar verður óraunhæf mæling á íslenskum framleiðsluatvinnuvegum. En í fréttum baðar viðskiptaráðherra sig í milljarðagróða banka. 25. Ágúst 2005
ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ AÐ STJÓRNVÖLD ÞURFI AÐ RÖKSTYÐJA STÓRIÐJUSTEFNUNA?
Í Viðskiptablaðinu í dag segir: "Fjárfestingar í stóriðju kosta gríðarlega fjármuni og er líklegt að þeim geti verið betur varið í þjóðfélaginu á öðrum sviðum". ..Sem kunnugt er birti greiningardeild KB banka álitsgerð nýlega í þessa veru. Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Jóhannes Sigurgeirrson, lýsir því hins vegar yfir í fréttum í gær að greiningardeild KB banka sé á villigötum varðandi þjóðhagsleg áhrif álframleiðslunnar. Stjórnarformaðurinn staðhæfir án þess að færa rök fyrir máli sínu. Svona einsog við þekkjum í gegnum tíðina...Það er fráleitt að ráðamenn þjóðarinnar komist upp með að fjárfesta fyrir hundruð milljarða af skattfé án þess að færa ítarleg, eða yfirleitt einhver, rök fyrir stefnu sinni. Fjölmiðlar bera hér mikla ábyrgð. Jón Steinsson skrifar mjög umhugsunarverðan pistil á Deigluna (deiglan.com), þar sem hann gagnrýnir fjölmiðla fyrir að...
24. Ágúst 2005
ÁSKORUN TIL FJÖLMIÐLA
Birtist í Morgunblaðinu 23.08.05
Hér á landi eru nú starfandi álver með 270 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Ef draumar Framsóknarflokksins verða að veruleika stefnir í að álframleiðslan verði 13-1400 þúsund tonn á ári. Með öðrum orðum, fari úr tvö hundruð og sjötíu þúsund tonnum í eina milljón og fjögur hundruð þúsund tonn. Ég tvítek tölurnar til þess að leggja áherslu á...Ég skora á fjölmiðla að fara í saumana á þessum málum. Það stefnir í að álframleiðsla verði uppistaðan í efnahagsframleiðslu hér á landi...án þess að Íslendingar fái nokkuð fyrir sinn snúð...Þarf ekki að stöðva fólk sem framkvæmir gegndarlaust á kostnað skattborgarans án þess að hafa snefil af bisnissviti...?
Hér á landi eru nú starfandi álver með 270 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Ef draumar Framsóknarflokksins verða að veruleika stefnir í að álframleiðslan verði 13-1400 þúsund tonn á ári. Með öðrum orðum, fari úr tvö hundruð og sjötíu þúsund tonnum í eina milljón og fjögur hundruð þúsund tonn. Ég tvítek tölurnar til þess að leggja áherslu á...Ég skora á fjölmiðla að fara í saumana á þessum málum. Það stefnir í að álframleiðsla verði uppistaðan í efnahagsframleiðslu hér á landi...án þess að Íslendingar fái nokkuð fyrir sinn snúð...Þarf ekki að stöðva fólk sem framkvæmir gegndarlaust á kostnað skattborgarans án þess að hafa snefil af bisnissviti...?
27. Maí 2005
SPURNING TIL MORGUNBLAÐSINS: HVAÐ VARÐ UM UMRÆÐUNA UM STÓRIÐJU?
Birtist í Morgunblaðinu 26.05.05
...Hlálegast finnst mér þó að heyra gallharða hægri sinnaða frjálshyggjumenn óskapast yfir afskiptum ríkisins af atvinnurekstri og niðurgreiðslum til landbúnaðar. Þetta eru sömu aðilar og lagt hafa blessun sína yfir stórfelldustu ríkisafskipti Íslandssögunnar, því Kárahnjúkavirkjun er að sjálfsögðu ríkisframkvæmd, eru reiðbúnir að niðurgreiða raforku til erlendra auðhringa, veita þeim skattfríðindi umfram íslensk fyrirtæki og fórna hagsmunum íslensks atvinnureksturs í þeirra þágu...
...Hlálegast finnst mér þó að heyra gallharða hægri sinnaða frjálshyggjumenn óskapast yfir afskiptum ríkisins af atvinnurekstri og niðurgreiðslum til landbúnaðar. Þetta eru sömu aðilar og lagt hafa blessun sína yfir stórfelldustu ríkisafskipti Íslandssögunnar, því Kárahnjúkavirkjun er að sjálfsögðu ríkisframkvæmd, eru reiðbúnir að niðurgreiða raforku til erlendra auðhringa, veita þeim skattfríðindi umfram íslensk fyrirtæki og fórna hagsmunum íslensks atvinnureksturs í þeirra þágu...
30. Mars 2005
BLIKKANDI VARNAÐARLJÓS Í FJÁRMÁLAKERFI
Fréttir sem nú berast innan úr bankakerfinu hljóta að vekja ríkisstjórnina – og okkur öll - til umhugsunar. Í morgun var sagt frá því í fréttum að yfirdráttarlán heimilanna hafi aukist um 1.500 milljónir króna í febrúar og væri þetta annar mánuðurinn í röð sem yfirdráttarlán heimilanna hækki...Á tímabilinu ágúst til desember á síðastliðnu ári drógust yfirdráttarlánin saman. Á því tímabili sáu margir sér hag í því að endurfjármagna yfirdráttarlán með hagstæðari íbúðarlánum til lengri tíma. Áður en þessi endurfjármögnun hófst námu yfirdráttarlánin 60,5 milljörðum króna. Nú stefnir í að þessu marki sé náð að nýju...
22. Mars 2005
BANKARNIR VILJA LOKA AÐ SÉR
...Ástæða er til að spyrja hvort það sé virkilega svo að upplýsingar um þessi efni séu einkamál. Eins og hér hefur komið fram er ekki krafist nafngreindra upplýsinga heldur aðeins almenns eðlis og einvörðungu í því augnamiði að fá úr því skorið hvort farið sé að lögum í landinu. Í fréttum Ríkisútvarpsins fyrir fáeinum vikum kom fram að Fjármálaeftirlitið væri að skoða þessi mál. Nú verður gengið eftir því á Alþingi við bankamálaráðherra hvort viðskiptaráðuneytið hafi leitað upplýsinga hjá Fjármálaeftirlitinu um athuganir á þess vegum. ..
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












