Beint á leiđarkerfi vefsins

Annađ

19. Janúar 2012

MISTÖK Á AĐ LEIĐRÉTTA

Birtist í Fréttablaðinu 18.0212.
Fréttabladid hausÍ fréttaskýringu í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag segir eftirfarandi  um fyrirsjáanleg átök á Alþingi um að fallið verði frá málshöfðun á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra: „Þar munu mætast stálin stinn og báðar fylkingar virðast nokkuð sigurvissar. Hvernig það mál fer verður ákveðinn mælikvarði á styrk stjórnarinnar."

Sinnaskipti

Þetta þykir mér undarlegur málatilbúnaður. Í þessu máli gilda ekki flokkslínur og eiga ekki að gilda nú frekar en haustið 2010, þegar þingsályktun um málið var samþykkt á þingi. Í þeirri atkvæðagreiðslu voru fylkingar ekki skýrari en svo að bæði Framsókn og Samfylking klofnuðu í afstöðu sinni og ráðherrar í ríkisstjórn greiddu ekki atkvæði á einn veg. Ráðherrar Samfylkingar greiddu atkvæði gegn málshöfðun gegn Geir H. Haarde, en við, ráðherrar og þingmenn VG, vorum fylgjandi. Ef þessir ráðherrar Samfylkingarinnar töldu málshöfðun ranga þá, hví ættu þeir að vera henni fylgjandi nú? Og hvers vegna í ósköpunum að ætla að stjórn og stjórnarandstaða muni nú takast á um málið á flokkspólitíkum forsendum - þar sem mætist „stálin stinn"? Það sem hins vegar hefur átt sér stað eru sinnaskipti hjá einhverjum okkar í VG og hugsanlega einnig í Framsóknarflokknum að því er mér skilst. Um sinnaskipti andstæðinga málshöfðunar hef ég ekki heyrt. Ég tala að sjálfsögðu aðeins fyrir sjálfan mig þegar ég geri grein fyrir eigin sinnaskiptum.

Einn stjórnmálamaður sekur?

Við atkvæðagreiðsluna um málshöfðun gegn Geir H. Haarde gerðist það að atkvæði féllu þannig að allir Samfylkingarráðherrar voru undanþegnir málssókn en Geir H. Haarde var látinn standa einn eftir. Einstakir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði að því er virtist, sitt á hvað. Niðurstaðan varð hins vegar flokkspólitísk: Enginn Samfylkingarráðherra var ákærður, aðeins einn Sjálfstæðismaður, Geir H. Haarde. Honum skyldi ætlað einum að axla samanlögð pólitísk mistök Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar í aðdraganda hrunsins!
Við þetta varð að mínu mati eðlisbreyting á þessu máli sem af hálfu okkar margra í VG, var hugsað sem prófsteinn á ábyrgð „stjórnmálanna".

Glæpsamleg ásetningsbrot?

Niðurstaðan varð hins vegar sú að einn maður átti nú að svara -  með fangelsisdóm yfir höfði sér - fyrir allt sem úrskeiðis hafði farið í áralöngum aðdraganda hrunsins þar sem fjöldi manns hafði komið að verki, með beinum eigin aðgerðum eða aðgerðarleysi sínu. Í mínum huga er undirgefni  við valdið engu síður ámælisverð en sjálf valdbeitingin. 
Ákæran gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi snýr að því að hann hafi sýnt af sér andvaraleysi og ekki sinnt samráði sem skyldi.
Ég hef orðið var við að margir halda að um það sé að ræða að Landsdómur fáist við rannsókn á því sem gerðist á landamærum glæpsamlegra ásetningsbrota annars vegar og pólitískra axarskafta hins vegar. Svo er ekki. Það eru axarsköftin sem eru til skoðunar og auk þess þröngt afmökuð í aðdraganda hrunsins. Hins vegar er ekki að undra að fólk haldi að miklu meira sé undir, því krafist er fjársektar og fangelsisvistar, allt að tveimur árum. Í vitund manna og þegar málið verður skoðað í sögulegu lósi síðar meir er hætt við að það taki á sig stærri mynd. Sú mynd er á ábyrgð okkar sem að þessu stöndum.

Sýndaruppgjör

Pólitísk afglöp geta verið afdrifarík eins og tvímælalaust átti við um stjórnarstefnuna og ákvarðanir í veigamiklum efnum á árunum í aðdraganda hrunsins, allar götur frá því framsal á kvóta var heimilað, bankarnir einkavæddir og tekið var til við að kynda undir græðgisæðið. „Virkjum eignagleðina", sagði  Davíð Oddsson í upphafi valdaferils síns. Heilir stjórnmálaflokkar, fjölmiðlar og stjórnsýslan að nokkru leyti, tóku í kjölfarið að stíga hinn tryllta dans peningahyggjunnar.
Sem áður segir tel ég að við fyrrnefnda atkvæðagreiðslu á þingi hafi orðið eðlisbreyting á málinu. Geir H. Haarde átti nú einn í reynd að svara til siðferðilegrar ábyrgðar fyrir allt það sem úrskeiðis hafði farið á hinum pólitíska vettvangi í löngum aðdraganda hrunsins þar sem margir höfðu komið við sögu. Eftir á að hyggja tel ég að mistök okkar sem greiddum þessari málssókn atkvæði séu mikil. Óháð niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar tel ég að við höfum farið villur vegar í málinu öllu. Réttarhöld yfir nokkkrum einstkaklingum vegna andvaraleysis þeirra og mistaka, geta í mínum huga aldrei orðið annað en sýndaruppgjör við skipbrot pólitískrar kreddu sem kjósendur studdu aftur og ítrekað.

Nú er hvíslað

Það er athyglisvert að ýmsir sem komu að stjórnmálum í aðdraganda hrunsins hvísla því nú í eyru okkar að fráleitt sé að stöðva þessa málsókn: Það þurfi nefnilega að gera málin upp!
Með þessum réttarhöldum er í mínum huga ekki verið að gera eitt eða neitt upp. Það kann hins vegar að vera að með þessum málatilbúnaði gerist hið gagnstæða, við látum afvegaleiðast í uppgjöri við fjármálakerfið og pólitísk afskipti af því og einkavæðingu á verðmætum samfélagseignum, þar sem einstaklingar högnuðust persónulega.
Ekkert af þessu á við um Geir H. Haarde. Hann framfylgdi hins vegar pólitískri kreddu sem bjó í haginn fyrir hina raunverulegu svindlara.

Hrunverjar á þingi

Stjórnmálin eiga enn eftir að draga lærdóma af hruninu með því að breyta  vinnubrögðum sínum.  Það mun gerast þótt það virðist ætla að taka lengri tíma en ég hafði trúað. Skýrsla þingmannanefndarinnar undir formennsku Atla Gíslasonar sneri fyrst og fremst að breyttum vinnubrögðum Alþingis og ríkisvalds, horfði með öðrum augum fram á veginn en ekki aftur.
Í anda skýrslunnar þurfum við sem skipum stjórnarmeirhlutann á Alþingi að horfa með gagnrýni á eigin gjörðir og stjórnarandstaðan, sem að uppistöðu til eru hrunverjarnir sjálfir, mætti tala af ögn meiri hógværð en hún gerir og sýna þannig að hún ætli í raun og veru að horfast í augu við sjálfa sig og pólitíska fortíð sína.

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

21. Febrúar 2012

VÍGSLÓĐI

...Mér finnst eftirfarandi línur í Vígslóða eftir Stephan G. Stephansson eiga vel við ástandið í Grikklandi núna:
Heimurinn sagður ofbirgur af öllu
öðru en gjaldi, sveltan stæði af nægtum.
Lánardrottnar heimsins hafa vitað,
hvað bjó undir stjórnarkápum ríkja:
Stærra veð í fjárhagsþrælkun fólksins
festa mætti, taka í skuldagísling
ófædd börn, til aldurloka jarðar
erfiðandi að gjalda vöxtu af lánum....
Jón Torfason

21. Febrúar 2012

ANNARS BER HENNI AĐ VÍKJA

Það verður að krefjast þess af stjórnvöldum strax að allar aðgerðir gegn heimilunum s.s. fjárnám, vörslusviptingar og gjaldþrotabeiðnir verði stöðvarðar undir eins. Tjónið sem stjórnvöld hafa valdið með þvi að gera þetta ekki nú þegar er gríðarlegt, og ekki eftir neinu að bíða. Þetta er algjörlega nauðsynlegt þar til það liggur fyrir 100% hvernig lánamálum skal háttað hér á landi, bæði varðandi ólöleg gengistryggð lán og verðtryggð íslensk lán. - sé Ríkisstjórnin ekki til í þetta undir eins ber henni að víkja og það strax.
Steinar Immanúel Sörensson

19. Febrúar 2012

ÍSLAND ÚR LOFTI

Setjum svo að við gætum flogið yfir Ísland og sett upp efnahagsgleraugu, svona einsog næturkíki, þá sæi maður eftirfarandi: 2000 milljarða í eigu almennings inni í girðingu sem heitir lífeyrissjóður; maður sæi ríkissjóð í eigu almennings sem skuldar 2000 milljarða; maður sæi 10-20 þúsund manns í atvinnuleysi; maður sæi heilsugæslu í niðurníðslu; maður sæi vegakerfi í ólestri. Fyrsta hugsunin væri auðvitað: Hvað veldur því að almenningur greiðir ekki upp skuldir sínar (helmingurinn af skuldum almennings er við sjálfan sig) með eignum sínum? Hvað veldur því að Alþingi ákveður ekki að...
Hreinn K

14. Febrúar 2012

STUTT AĐ LABBA?

Trúðu mér, að aldrei hef ég fallerað fyrir framsóknarmaddömunni, en maður er svo dannaður að maður hlustar einstaka sinnum eftir orðræðu maddömunnar. Sér í lagi eftir að Utanríkismálanefnd ESB sá ástæðu til að gefa úr sérstaka fagnaðar-yfirlýsingu um að Jón Bjarnason hefði verið hrakinn úr embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsmála Íslands og fyrrverandi Icesave fjármálaráðherrann tekinn því djobbi. Nú Sigmundur maddama spurði bara pent: „Hvaða ástæðu hefur Evrópusambandið til að fagna sérstaklega þessum ráðherraskiptum? Á hvaða hátt verður ...
Jón Jón Jónsson

13. Febrúar 2012

GOTT AĐ HAFA ŢIG Í SKOTLÍNUNNI?

Ég hef fylgst með viðureign fréttastofu RÚV við þig Ögmundur og furða ég mig á fréttamennskunni um lífeyrismálin. Útgangspunktur fréttamanna RÚV ert nánast þú einn - einn maður - en ekki málefnið! Nú fer maður að skilja hrunið. Þessir fréttmiðlar fylgdu útrásinni gagnrýnislaust. Nú er sama gagnrýnisleysið uppi á teningnum. Bara breytt formerki. Aðdáun á einkaþotum víkur fyrir áhuga á galdrabrennum. Eins mikil og þörfin er að ræða lífeyrismálin gagnrýnið einsog...
BSRB félagi

13. Febrúar 2012

ŢJÓĐIN BLÓĐMJÓLKUĐ!

Ætlar Innanríkisráðherrann að standa við loforð um mannréttindi í hvívetna? Ásamt því að virða og heiðra álit Mannréttindanefndar SÞ? Og þar með að bæta þeim sjómönnum þau mannréttindabrot sem framin hafa verið? Ekki trúi ég að Innanríkisráðherrann óttist gengið í LJÚ? Að gefnu tilefni finnst mér rétt að árétta við Innanríkisráðherrann stórfelld lögbrot sem framin eru enn í dag, sem og undanfarna áratugi, allt frá setningu kvótalaganna 1984. Umboðssvik og ...
Birgir Rúnar Sæmundsson

13. Febrúar 2012

EKKI LÁTA KÚGAST

Láttu svikula fjölmiðla aldrei kúga þig Ögmundur....
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Annađ

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta