Annađ
26. Ágúst 2010
TIL FYRIRMYNDAR Á NORĐURSLÓĐUM

Við erum rúmlega þrjú hundruð þúsund talsins - Íslendingar. Við höfum ekki ótakmörkuð fjárráð - allra síst á samdráttartímum. Þess vegna þurfum við að ráðstafa fjármunum á mjög markvissan hátt. Það á ekki síst við í alþjóðasamstarfi. Þar þarf að hugsa um samspil menntunar og rannsókna annars vegar og hagsmuna hins vegar. Framlag Íslands á sviði hafréttarmála er gott dæmi um hvar vel hefur tekist til hvað þetta samspil snertir.
Hvert eigum við að beina kröftum okkar á alþjóðavísu? 1) Við getum lagt heilmikið af mörkum á sviði orku og vatnsmála - sem vísindafólk, rannsakendur og tæknifólk (en ekki sem fjárfestar, það var hinn stóri misskilningur í Stóru-Bólu).2) Við getum lagt af mörkum á ýmsum sviðum heilbrigðismála. 3) Við getum einbeitt okkur að öllu því sem snertir hafið - lífríkið og nýtingu þess, lögum og reglum sem að því lúta og þá sérstaklega á norðurslóðum -Þar sem við eigum heima!
Í þessu samhengi þykir mér til fyrirmyndar sú áhersla sem Háskólinn á Akureyri leggur á rannsóknir í norðurslóðafræðum. Hvers vegna? Jú, vegna þess að Ísland er á norðurslóðum, norðurslóðir eru að fá aukna þýðingu á hinu stórpólitíska heimskorti - og síðast en ekki síst það er skynsamlegt að við sérhæfum okkur í málum sem við höfum forsendur til að geta gert mjög vel. Og því sýnist mér Háskólinn á Akureyri markvisst stefna hvað varðar norðurslóðafræði.
Síðan 1998 hefur stofnun Vilhjálms Stefánssonar verið starfandi innan vébanda háskólans. Stofnuninni er ætlað „innlent og alþjóðlegt hlutverk viðvíkjandi rannsóknum, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og samvinnu á sviði sjálfbærrar þróunar og umhverfismála á norðurslóðum. Verkefni stofnunarinnar tengjast í áherslu á þverfaglega og fjölþjóðlega umfjöllun um fræðilegar og hagnýtar lausnir á viðfangsefnum sem sérstaklega tengjast norðurslóðum." sjá nánar: http://www.svs.is/umsvs.htm
Lagadeild Hákólans á Akureyri skipuleggur sig markvisst með norðurslóðafræði í huga. Undir forystu Ágústar Þórs Árnasonar er nú boðið upp á menntun á þessu sviði og er leitað til færustu sérfræðinga sem völ er á og koma þeir margir hverjir sem gestakennarar til að kenna á sínu sérsviði. Þess má geta að í þessum hópi er Guðmundur Alfreðsson, sem nýtur alþjóðlegrar viðurkennigar sem einn fremsti fræðimaður í á þessu sviði.
Ástæðan fyrir þessum skrifum er nýleg heimsókn utanríkismálanefndar Alþingis til þess að kynna sér norðurslóðastarfið innan Háskólans á Akureyri. Gaman var að finna hinn þverpólitíska skilning í nefndinni á því að þarna væru menn á réttri leið. http://www.polarlaw.is/
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












