Annađ
18. Maí 2010
MISSKILDIR KRAFTAVERKAMENN

Fulltrúi Magma Energy sagði í sjónvarpsviðtali (http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472192/2010/05/17/) að hann vildi vinna Íslendingum vel. Og svo bætti hann við: Og fjárfsestunum líka! Ætli það ekki. Hvílkt kræsingaborð Ísland er í augum þessara aðila! Þorskurinn, jarðvarminn, fallvötnin...Nú beinir Magma Enrergy sjónum að Hrunamannaafrétti „frá Flúðum upp í Kerlingafjöll." Sveitarstjórnarmenn á svæðinu segja að þarna gætu verið gríðarlegir virkjunarmöguleikar og taka vel í samstarf við Magma. Þetta kom fram í fréttum: http://dagskra.ruv.is/ras1/4486982/2010/05/18/0/
Hér er um meiri hagsmuni að ræða en svo að sveitarstjórnarmenn á tilteknu svæði megi ráða einir um framvinduna. Eignarhald og nýting auðlindanna kemur okkur öllum við - öllum landsmönnum. Þar á hvorki Hrunamnnahreppur né meintir kraftaverkamenn í Reykjanesbæ að hafa sjáfdæmi. Setja þarf skýra nýtingarátælun sem byggð er á vandaðri og umfangsmikilli umræðu og sátt í samfélaginu. Hér þarf að horfa til náttúreverndar og einnig hins að arðurinn af auðlindum gagnist íslensku samfélagi, ekki fjárfestunum í Magma!
Við erum búin að horfa upp á svo ótrúlegt ábyrgðarleysi og andvaraleysi í ráðstöfun auðlinda okkar að ég hélt sannast sagna að við þyrftum ekki að fara í gegnum þessa umræðu að nýju. En þegar menn eru búnir að skuldsetja sveitarfélögin upp í rjáfur einsog gerst hefur í Reykjanesbæ eða eru glámskyggnir á hætturnar í samstarfi við „góðu mennina" sem koma með allt nammið frá útlöndum og segjast vilja okkur svo vel, einsog mér heyrist á oddvita Hrunamannahrepps, þá þarf að grípa í taumana. Ég tek heilshugar undir með höfundi leiðara Morgunblaðsins sem bregst við einmitt þessum aðstæðum í dag og segir réttilega:
„Um leið og við eigum að fagna margvíslegri fjárfestingu verðum við að hafa þrek til þess að láta ekki frá okkur auðæfi til langs tíma á gjafvirði dagsins. Við höfum bognað aðeins en við höfum ekki brotnað. Þjóðin hefur ekki samþykkt að eignir hennar séu falboðnar af kæruleysi á brunaútsölu. Og við megum enn síður láta frá okkur að taka efnislega afstöðu til hvers máls. Það fer til að mynda ekki á milli mála að það stríðir gegn anda gildandi laga að lauma erlendum fjárfestum inn í orkugeirann í gegnum skúffufyrirtæki í Svíþjóð. Og þó er líklegra að slík sniðganga við lögin sé beint brot gagnvart þeim sjálfum. Við eigum að taka okkar eign ákvarðanir um hvernig við viljum skipa eignarhaldi á meginauðlindum okkar."
Það er rétt. Það er óafsakandi að Alþingi skuli ekki hafa breytt lögum í þá veru sem við Hjörleifur Guttormsson, þáverandi alþingismaður beittum okkur fyrir á sinni tíð, og fól í sér að sveitarstjórnarmenn gátu ekki frarið með náttúruperlur og auðlindir heillar þjóðar eftir því hvernig stóð í bóli hjá þeim í það og það skiptið. Eða hvað fyndist mönnum um ef það væru sveitarstjórnarmenn við strandlengjuna sem réðu því einir hvort útlendingum væri seld fiskveiðiauðlindin við Íslandsstrendur?
Frá lesendum
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTĆKA FÁNA AĐ HÚNI!
Þorleifur Gunnlaugsson
8. Febrúar 2012
ENGAR BOĐSFERĐIR
Hermundur Sigurðsson
8. Febrúar 2012
VARĐ AĐ KLÍPA MIG!
Viðar Magnússon
8. Febrúar 2012
BOĐBERAR LÝGINNAR?
Sigurður Haraldsson
7. Febrúar 2012
EFTIRHRUNS-SAGAN
Þórður H.
6. Febrúar 2012
AĐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRĆTTI
Hreinn
6. Febrúar 2012
AUMT YFIRKLÓR
Magnús Helgason












