Beint á leiðarkerfi vefsins

Annað

11. Febrúar 2010

HÆTTUR VIÐ AÐ FARA Í HAGFRÆÐI


Það er svolítið sérstakt hvernig Þórólfur Matthíasson, háskólaprófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, umgengst sannleikann. í Fréttablaðinu í dag birtist grein eftir Þórólf, sem lesendum blaðsins, er sagt vera svar við skrifum mínum um röksemdafærslu prófessorsins.
Ég ætla ekki að efast um að þessi grein sé meint sem einhvers konar svar þótt hún í raun sé það ekki.
Mér eru gerðar upp skoðanir sem ég alls ekki hef og látið er að því liggja að ég fullyrði sitthvað sem ég alls ekki hef gert. Þannig segir Þórólfur Matthíasson svo dæmi sé tekið: „Fullyrðingar um að kostnaður við lausn IceSave-deilunnar séu 700 milljarðar eru blekkingar." Aldrei hef ég haldið þessu fram. Meira að segja fullyrðingar um lesendabréf á heimasíðu minni eru rangar. Þórólfur nefnir þar nokkur nöfn - þar á meðal Pétur nokkurn, sem hefur verið afkastamikill upp á síðkastið -  og segir: „Svo undarlega vill til að þessir bréfavinir Ögmundar eru allir á sama máli og hann."
Einhvern tímann hafði ég á orði að gaman gæti verið að smella sér í kúrsa í hagfræði við Háskóla Íslands til að sækja inspírasjón. Ég er hættur við.
Ég hef enga sérstaka löngun til að elta ólar við Þórólf Matthíasson. Ég ætla hins vegar að leyfa mér að birta grein hans og síðan gefa slóðirnar á þau skrif sem Þórólfur kveðst vera að svara. Þeir lesendur síðunnar sem hafa áhuga og nennu geta þá dæmt hver fyrir sig.
En byrjum á „bréfavini" mínum, Pétri. Hér eru tvö síðustu bréf hans: http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/5067/
http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/5064/
Pistill
á heimasíðu: http://ogmundur.is/annad/nr/5057/ Grein í Morgunblaðinu: http://ogmundur.is/stjornmal/nr/5069/ Grein Þórólfs í Fréttablaðinu í dag:

Staðreyndir og blekkingar

Umræðan Þórólfur Matthíasson svarar Ögmundi Jónassyni Þórólfur Matthíasson svarar Ögmundi Jónassyni Ögmundur Jónasson sendir mér tóninn á heimasíðu sinni auk þess að veita málglöðum einstaklingum sem bera nöfn eins og Pétur, Aðalsteinn eða Árni athvarf á þessari sömu síðu. Svo undarlega vill til að þessir bréfavinir Ögmundar eru allir á sama máli og hann. Vera kann að þetta marghenta vefsíðu-orgelspil sé verk margra manna. En hvort sem Ögmundur er margur eða einn í þessum skrifum er eitt víst og það er að þau auka ekki gæði þjóðfélagsumræðunnar á Íslandi. Síðasta pistil sinn kallar Ögmundur Hættum blekkingum! Þann pistil mun hann einnig hafa birt í Morgunblaðinu.

Um fá mál hafa verið jafn skiptar skoðanir hér á landi og um hvernig gengið skuli frá skuldamálum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda vegna IceSave-reikninganna í Bretlandi og Hollandi enda eru á málinu margar hliðar. Í augnablikinu virðist sem Ögmundur og meirihluti kjósenda eigi samleið í andstöðu við lausnartilburði ríkisstjórnarinnar. Þetta að eiga samleið með meirihlutanum er líklega ný staða fyrir hann. Og nú bregður svo við að Ögmundur vill ekki að þeir sem skoða málið frá öðrum vinklum en hann sjálfur geri grein fyrir skoðunum sínum og niðurstöðum á erlendum vettvangi. Það hefði nú einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar.

Ögmundur, sem var verkalýðsforingi í mörg ár, gagnrýnir aðferð mína við að meta skuldbindingar Íslendinga vegna fyrirliggjandi samnings um greiðslu IceSave-skuldarinnar. Það kemur mér á óvart því aðferðafræðin er nákvæmlega sú sama og beitt er þegar kjarasamningar og samningstilboð þeim tengd eru metin. Upphæðir sem falla til á ólíkum tímum eru færðar á sambærilegt verðlag og greiðslustraumar eru núvirtir. Dæmi: Setjum sem svo að viðsemjendur Ögmundar verkalýðsforingja setji hann í þá pínu að velja milli 10.000 króna eingreiðslu 1. maí eða segjum 12.000 króna eingreiðslu 1. desember. Hvor kosturinn er betri fer eftir verðlagsþróun og ávöxtunarkröfu.

Til að meta það og ákveða hvorn kostinn skuli velja þarf að staðvirða og núvirða! Sé það ekki gert er hætt við því að verkalýðsforinginn samþykki lakara tilboðið og snuði þannig umbjóðendur sína. En þegar kemur að skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda er sú aðferðafræði sem góðir verkalýðsforingjar nota í kjarasamningum allt í einu stórhættuleg, að ekki sé sagt þjóðhættuleg að áliti Ögmundar!

Það er stefna Englandsbanka að halda verðbólgu í Bretlandi innan við 3% á ári. Það er samdóma álit hagfræðinga að sú barátta verði bankanum erfið nokkur næstu ár vegna mikils hallareksturs breska ríkisins. Verði verðbólga að meðaltali 2,5% á ári næstu 15 ár mun eitt pund hafa tapað 30% af verðgildi sínu við lok tímabilsins. Séu opinberir reiknivextir 6% er staðgreiðsluvirði 70 pensa sem falla til greiðslu eftir 15 ár rétt innan við 30 pens. Ég vona að það falli ekki undir blekkingar að ljóstra þessu upp. Sé IceSave-skuldbindingin staðvirt og núvirt er verðmæti hennar á bilinu 120 til 180 milljarðar króna, allt eftir því hvaða ávöxtunarkrafa er gerð og hvaða forsendur eru settar fram um verðlagsþróun í Bretlandi og Hollandi.

Fullyrðingar um að kostnaður við lausn IceSave-deilunnar séu 700 milljarðar eru blekkingar. Leiða má líkur að því að núvirtur kostnaður af að fresta því að leysa IceSave-málið sé margfaldur á við þá 120-180 milljarða sem fyrirliggjandi samningur kostar.
Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.

 

 


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur

8. Febrúar 2012

RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!

Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson 

8. Febrúar 2012

ENGAR BOÐSFERÐIR

...Hefur þú einhvern þáð boðsferðir banka eða annara fyrirtækja, á vegum lífeyrissjóða, á kostnað banka eða annara fyrirtækja?
Hermundur Sigurðsson

8. Febrúar 2012

VARÐ AÐ KLÍPA MIG!

 Ég var að hlusta á þig verja gjörðir þínar vegna starfa þinna fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisinns. Ég vil byrja á að segja þér að hingað til hef ég haft álit á þér og því sem þú hefur sagst standa fyrir,en mér var bara öllum lokið þegar ég heyrði þig tala við Helga Seljan ég varð að klípa mig í handlegginn til að vera viss um að ég væri örugglega vakandi. Að hlusta á þeig var eins og að hlusta á sjálfstæðismennina stuttu eftir hrun, allir fóru þeir að lögum og skildu ekki að þeir hefðu gert eithvað rangt. Þú segist hafa ....
Viðar Magnússon

8. Febrúar 2012

BOÐBERAR LÝGINNAR?

...Ögmundur nú værirðu maður að meiri ef þú stendur upp og viðurkennir mistök þín sem stjórnarmanns og leggur til að þetta kerfi verði gert upp, verðmæti sem þar finnast hugsanlega verði skilað til eigenda sinna sem geta síðan ráðstafað þeim annaðhvort til íbúðalánasjóðs á 1.5% vöxtum eða í ríkisskjuldabréf á sömu kjörum en að þeim fjármunum verði síðan skilað til eigendanna við 67 ára aldur. Þetta samkrull verkalýðsforingja svokallaðra og atvinnurekenda er undirrót allrar spillingar á Íslandi.
Sigurður Haraldsson

7. Febrúar 2012

EFTIRHRUNS-SAGAN

Opinber umræða á Íslandi er söm við sig. Nú ætlar allt um koll að keyra því það kom í ljós að lífeyrissjóðirnir töpuðu peningum. Íslensk kreppusagnfræði hefur ekki litið framhjá þætti lífeyrissjóðanna til þessa. Kemur nokkrum á óvart að fyrstu íslensku fyrirtækin sem blésu sápukúlur í áður óþekktum mæli fengu lífeyrissjóðina í lið með sér? Er það óþekkt að þegar hringekja íslenska efnahagsundursins snerist hraðar - og fleiri tóku þátt - spiluðu lífeyrissjóðirnir áfram með? Ef þetta vekur ekki sérstaka undrun ætti það ekki að vekja undrun heldur að það sitji eftir tap hjá sjóðunum. Tapið skapast af því að eignasafn sjóðanna var morkið af afleiðingum viðskipta á íslenskum markaði. Áhættunni af...
Þórður H.
 

6. Febrúar 2012

AÐ VINNA Í FLOKKA-HAPPDRÆTTI

...Múgurinn heimtar siðbót og réttlæti með heykvíslar og kyndla að vopni. Þetta er frekar ruddalegt kerfi en hefur trúlega verið mun lengur við lýði en þessi Vestræna lýðræðishefð sem við viljum trúa að einkenni okkar tilveru. Ég held að eitt einkenni þessarar lýðræðishefðar sé minnihlutavernd. Meirihlutinn má ekki leyfa sér allt sem hann getur. Nýir meirihlutar eiga undir venjulegum kringumstæðum ekki að neyta aflsmunar, hvorki með því að raða sínum mönnum á garðann eða beita sér gegn andstæðingum sínum. Flöktandi meirihlutar á þingi ættu ekki að ráða hverjir þurfa að verja sig fyrir dómstólum þann daginn. Þetta hvarflar þó að manni þegar litið er ...
Hreinn

6. Febrúar 2012

AUMT YFIRKLÓR

Það sýnir sig enn og aftur verði samþykkt að draga ákæruna á hendur Geir að þingmenn passa sig og sína. Ef Geir er saklaus þá mun landsdómurinn vænntalega kveða út úr um það. Væri það ekki betra en að láta það vera hangandi yfir honum til æviloka að hann var skorinn úr snörunni af vinum sínum..... Ggreinin þín í Morgunbalðinu var aumt yfirklór af þinni hálfu.
Magnús Helgason


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Annað

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta